forritið
er nú í útgáfu 0.9.1
Windows og Mac notendur geta hlaðið niður
uppsetningapökkum með krækjunum hér til
hægri.
Linux notendur ættu að nota pakkastjóra
dreifingarinnar sinnar; Stellarium er til dæmis inni á
Pacman forritasafninu. Sé það ekki í boði
þarf að setja upp frá source, nú eða ef
menn vilja ganga á blábrúninni þá er
hægt að setja upp SVN- útgáfuna sem er í stöðugri þróun.
Annars er vísað hér í enskar leiðbeiningar á heimasíðu Stellarium eða í notendahandbókinni.
wiki
Wiki-svæðið er staðurinn sem notendur og hönnuðir stellarium nota til að halda til haga allri þekkingu á forritinu, þar getur þú komið þínum skerf á framfæri líka.
uppsetning
Setja upp íslenska þýðingu Stellarium:
"Handvirk" uppsetning þýðingarinnar ekkert stórmál
ef maður veit hvar .mo skráin á að vera.
Á Windows 2000/XP þarf að vista skrána inn (sem
administrator) á: C:\Program
Files\Stellarium\locale\is\
LC_MESSAGES\stellarium.mo (búa til þær möppur sem á vantar).
Á OSX getur uppsetningarmappan verið á ýmsum stöðum en er þó
víst oftast á /Applications/stellarium
(þýðingin fer þá í
/Applications/stellarium/locale/is/
LC_MESSAGES/stellarium.mo)
o.s.frv.
Á flestum linux dreifingum er staðsetningin /usr/share/locale/is/LC_MESSAGES/stellarium.mo að sjálfsögðu þarf maður að vera með skrifréttindi í þá möppu.
Setja upp nýtt landslag:
Fyrir landslagið er staðsetningin á Windows 2000/XP: C:\Program Files\Stellarium\landscapes\vonarskard (afzippa pakkann héðan inn í \landscapes).
Á OSX þarf að finna uppsetningarmöppuna sem er oftast á /Applications/stellarium og vista landslagið inn í landscapes möppuna; innihald möppunnar í .zip skránni fer í /Applications/stellarium/landscapes/vonarskard/.
Á flestum linux dreifingum er staðsetningin /usr/share/stellarium/landscapes/vonarskard/ .
Setja upp fleiri stjörnur:
Til að halda uppsetningarpökkum Stellarium innan viðráðanlegra marka, eru einungis fjórir af níu sjörnugagnagrunnum Stellarium með í uppsetningunni. Til að bæta við fleiri grunnum (catalogs) eru leiðbeiningar hér. Til gamans má geta að sá níundi inniheldur 116,923,084 stjörnur, er 674Mb í niðurhali og þarfnast amk 1024Mb vinnsluminnis.
íslensk þýðing
Búið er að þýða útgáfu 0.9.1 á íslensku. Leiðbeiningar um hvernig íslenska þýðingin er sett upp er hér til vinstri, hér að neðan eru skrárnar sem til þarf.
Þetta er sjálf þýðingin, leiðbeiningar um uppsetningu eru hér til vinstri.
Einnig er búið að búa til nýtt landslag frá Íslandi, Sveinn í Felli hamraði saman umhverfinu í Vonarskarði. Vonandi koma fleiri innan tíðar.
Leiðbeiningar um uppsetningu eru hér til vinstri.
Sverrir skellti saman í uppsetningarpakka fyrir MacOSX bæði forritinu, íslensku þýðingunni og landslaginu úr Vonarskarði.
þýðendur
Stjörnufræðihugtök ofl: Sverrir Guðmundsson
Viðmót og vinnsla: Sveinn í Felli
Ýmsar upplýsingar eru af vef Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness: http://www.astro.is/
Einnig af Stjörnufræðivefnum: http://www.stjornuskodun.is/
Bestu þakkir fær Sævar Helgi Bragason fyrir aðstoðina.


