| HVER | HVAR | HVERS | HVAÐ | HVERNIG | HVE | HVORT | HVENÆR | HVERT | H | |
| 07.08.'03
Vefurinn er miðill nútímans í kynningu fyrirtækja, á sérstöðu þjónustu þeirra og vörum. Enginn einn miðill hefur eins stóran notendahóp og internetið. Á netinu nærðu því til mun stærri markhóps en áður hefur þekkst. Milljónatugir notenda um víða veröld hafa aðgang að því allan sólarhringinn... alla daga ársins. Við íslendingar erum í 1. sæti yfir fjölda notenda þess, miðað við höfðatölu. Vefurinn er því í dag það hjálpartæki sem flest okkar nota við öflun upplýsinga. Því skiptir það sköpum fyrir fyrirtæki og stofnanir sem hyggjast fylgja takti tímans, að hafa vandaða heimasíðu. Markaðssetning Stækkaðu markaðssvæði þitt með því að setja upplýsingar um fyrirtækið á Internetið. Með nettengingu getur þú átt viðskipti við hvern sem er, hvar sem er í heiminum jafn auðveldlega og við aðila í sama húsi.. frh. neðar Auglýsingar Hönnun, prentun og birting auglýsinga er verulega kostnaðarsöm. Þurfi fyrirtæki eða einstaklingur að breyta lítilræði í sambandi við kynningu, er hætta á því að sitja uppi með mikið magn úreltra pappíra og/eða þurfa að kosta til nýrri hönnun og prentun. Með rafrænni birtingu er auðveldlega hægt að breyta upplýsingum á fljótlegan hátt og án mikils kostnaðar. Trúverðugleiki Sýndu framsýni og gefðu fyrirtækinu þínu nútímalegt og trúverðugt yfirbragð. Að finna ekki upplýsingar um fyrirtæki á netinu sendir ákveðin skilaboð. Vel gerð heimasíða vekur og styrkir traust viðskiptavina. North & South Vefhönnun [ North & South Web Design ] er alhliða heimasíðugerð og grafísk hönnun. Við hönnum vörumerki [logo] hverskonar og auglýsingar ásamt fullvinnslu prentgripa. |