Í upphafi hefur þú 3 kafbáta. Þú stjórnar þeim með músaroddinum. Klikkaðu með músinni til að skjóta tundurskeyti upp að yfirborðinu. Ýttu á orðabilstakkan til að skjóta tundurskeyti til hægri. Þar sem það tekur áhöfnina smá stund að hlaða vopnin, getur þú einungis skotið einu tundurskeyti í hvora átt í einu. Markmið þitt sem skipstjóra kafbátsins er að skjóta öll 10 flutningaskipin í efstu röðinni áður en kemur að næsta verkefni. Forðastu að skjóta á spítalaskipin. Það er bannað með alþjóðalögum og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Gættu vel að þér í undirdjúpunum þar leynast djúpsprengjur, segulsprengjur og annar óþverri. Kafbáturinn hefur takmarkaðar byrgðir af eldsneyti og tundurskeytum, og verður að sækja sér hvort tveggja reglulega. Byrgðakafbátur mun sigla nálægt botninum annað veifið og sleppa lausum höfrungi sem flytur þér eldsneyti og skotfæri. Með því að snerta með kafbátnum, pakkann á baki höfrungsins endurhleðst kafbáturinn. Og sama hvað þú gerir EKKI SKJÓTA Á HÖFRUNGINN. Hann á marga vini í hafinu... vini sem ekki taka því þegjandi.
|