Rockslide



Rockslide er skemmtilegur leikur sem krefst útsjónarsemi

    Markmið leiksins er að koma sem flestum kúlum í gegnum hliðin til jarðar. Hver kúla sem nær jörðu eykur skor þitt um 1. Þú kemur kúlu af stað með því að klikka á grænu ferningana efst til vinstri. Þú og tölvan skiptast á að gera. Falli 2 eða fleiri kúlur til botns í einni aðgerð, fær sá aðili að gera aftur.

    Þú getur valið um ýmsa möguleika svo sem hver byrjar, eins ræður þú fjölda raða og dálka.Þá getur þú ráðið því hversu hátt þarf að fara til að vinningur hljótist. Levels 1 og 2 eru mjög auðveldir en henta vel til að kynnast leiknum. Í Level 1 velur tölvan alltaf eins mótleik, en í Level 2 er mótleikurinn tilviljunarkenndur. Levels 3 og 4 eru erfiðari, því þar reiknar talvan út hvar og hvernig hún fer verst með þig.

    Klikkið á "New Game" til að gera breytingar virkar og/eða til að hefja nýjan leik...



Úrval leikja og þrauta - www.betra.net