Hvernig virkar þetta?
-
Motif segir "Welcome to Motif Backgammon!" klikkaðu "Ok" hnappinn.
Klikkaðu síðan á "Start a Game" hnappinn. Motif mun kasta teningunum fyrir ykkur báða í fyrstunni. Þú ert hvítur og Motif er rauður.
Sá ykkar sem fær hærra teningsskor byrjar. Byrji Motif,
muntu sjá texta bregða fyrir sem segir "Motif is thinking . . ." og sekúndu síðar,munu rauðu plöturnar fara á þá staði sem Motif velur þeim. Klikkaðu þá á "Ok" og síðan á "Roll Dice" til að kasta fyrir sjálfan þig.
Byrjir þú fyrstur, skaltu færa þær plötur sem þú velur í samræmi við tölur beggja teninganna. Þú færir plöturnar með því að draga þær með músinni. (Til að draga plötu, staðsetur þú músaroddinn yfir plötunni, þrýstir músarhnappinum niður og dregur plötuna á þann stað sem þú velur henni með því að færa músina og sleppir síðan músarhnappinum.) Þegar þú hefur staðsett plöturnar í samræmi við kastið
mun "Ok" verða virkur. Klikkaðu þá á "Ok" til að ljúka færslunni, eða á "Cancel" til að breyta.
Einn möguleiki á færslu er að klikka einu sinni á þann stað sem þú vilt færa plötu á, og mun þá sú plata sem næst er og uppfyllir talnagildið færast þangað.
|