|
||
|
|
Alfreð flutti með foreldrum sínum til til Akureyrar 1913, þar sem Christian faðir hans starfaði á skrifstofu hjá Otto Friðrik Tuliníus. Fjölskyldan bjó við Aðalstræti. Fjölskyldan flutti síðan til Siglufjarðar og þar ólst Alfreð upp. Á sumrum vann hann í síldinni eins og öll börn og unglingar á Siglufirði á þeim tíma. Árið 1937 flytur hann ásamt konu sinni og tveimur börnum til Akureyrar. Á Akureyri hóf hann nám í málmsmíðum og 1942 stofnar hann Vélsmiðjuna Alta hf, ásamt fleirum og næstu 45 árin ráku þeir félagar það fyrirtæki með miklum myndar brag. Auk Atla, rak hann verslun, Alta-búðina, í mörg ár og kom að stofnun og rekstri á öðrum fyrirtækjum s.s. Stáliðn, Norðurverki, Ofnasmiðju Norðurlands o.fl Alfreð starfaði mikið að félagsmálum, söng tenór með Karlakórnum Geysi, var virkur í stéttarbaráttu, en lét pólitík nær afskiptalausa, og starfaði í Frímúrarareglunni á Akureyri í áratugi.
|
|