Heim
 Saga
 C.L.M. framætt
 J.S.R. framætt

  Niðjatal
 Myndir
  Myndir-2
 Myndir-3
 Myndir-4

  Ljóðmæli
  Sagnaþættir
 Minningar
  Lausir endar
 Krækjur

 

English Summary


Póstur

 

Til baka á minningarsíðu.

Alfreð Möller
f: 30. desember 109
d: 10. janúar 1994

(Mbl 18. janúar 1994)

Dags er geislar dofna
dauðinn hraðar för
sælt er að mega sofna
með sigurbros á vör.
Minning manninn lifir
að mold þó hverfi hann
auga þínu yfir
aldur lífsins brann.
              (GK)

Þessar ljóðlínur komu mér í hug við fráfall tengdaföður míns hins mæta manns, Alfreðs Möller.
Alfreð Möller var fæddur í Miðhúsum í Óslandshlíð í Skagafirði, sonur Jónu Sigurbjargar Rögnvaldsdóttur og Christians Ludvigs Möllers, verslunarmanns og lögregluþjóns á Siglufirði.  Hann var elstur átta barna þeirra hjóna.
Alfreð kvæntist 16. október 1937 Friðnýju S. Baldvinsdóttur frá Stóra-Eyrarlandi við Akureyri.  Þeim varð sex barna auðið. Þau eru Lucinda Gigja, gift undirrituðum, Halldóri Hallgrímssyni; Páll Geir, kvæntur Gerði Guðvarðardóttur; Súsanna Jóna, var gift Einari Guðnasyni; Alma Kristín, gift Birgi Birni Svavarssyni; Erla Elva, sambýlismaður hennar er Sverrir Sigurvinsson; og Jóhann Gunnar, kvæntur Stefaníu Hauksdóttur.  Afabörnin eru 15 og langafabörnin 23.

Fyrstu kynni okkar Alfreðs urðu þegar dóttir hans, núverandi eiginkona mín. Gigja, kynnti mig sem unnusta sinn, en þá sagði Alfreð: „Ég hef aldrei ráðið neitt við stelpuna og ég býst við að þú gerir það ekki heldur.“  Þannig kom hann fram, fullur af hreinskilni alla tíð, hreinskilni sem var blönduð skemmtilegri kímni.  Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast, svo sem ánægjustunda á heimili þeirra hjóna Friðnýjar og Alfreðs.  Þegar fjölskyldan kom saman tók Friðný fram „mandólínið“, börnin sín hljóðfæri og lagið var tekið.  Hjá þeim hjónum var gestrisni og hjartahlýja í fyrirrúmi , sem yljaði okkur sem þar bar að garði.  Alfreð var bóngóður maður er vildi leysa hvers manns vanda er til hans leitaði, en vildi sem minnst um það tala. 
Alfreð var félagslyndur maður og nutu mörg félög krafta hans.  Hann var völundur til handa, sem margir gripir bera vitni um, svo sem Atla-stöngin og Alfreðs-stöngin, sem hann gerði og gaf sem verðlaunagripi fyrir sjómannadaginn.   Friðný lést 22. apríl 1988 og var það mikið áfall fyrir Alfreð og fjölskylduna.  Má segja, að hann hafi ekki verið samur maður eftir.  Börnin og fjölskyldur þeirra reyndu að létta honum missinn eins og hægt var, en ljósið í lífi hans var slokknað.
Ég vil fyrir hönd tengdabarna Alfreðs og Friðnýjar, þakka fyrir samfylgdina og allt sem þau gáfu okkur.

Yndi er að eiga
ást og fórnarblóð
þín margir sakna mega
er meta verkin góð.
Þér ég þakkir færi
þín var kynning hlý.
Vík nú vinur kæri,
verksvið inn á ný.
           (GK)

Halldór Hallgrímsson

 

Við viljum með nokkrum orðum minnast afa okkar, Alfreðs Möller, sem lést 10. janúar síðastliðinn, 84 ára að aldri.
Allt frá því að amma okkar Friðný S. Baldvinsdóttir, lést í apríl 1988, hefur afi viljað komast til hennar og nú hefur hann fengið ósk sína uppfyllta.    Afi átti erfitt með að tjá tilfinningar sínar en við vissum og fundum þá að missir afa var mikill, því upp frá því var eins og lífsljós hans tæki að dofna.  Nú eru þau afi og amma, loks saman á ný.  Afi hefur í gegnum árin fylgst vel með okkur afabörnunum.  Hann var ef til vill ekki mikill barnakarl, en hafði þó áhuga á flestu því sem við krakkarnir tókum okkur fyrir hendur.  Hann fylgdist með okkur í leik og starfi og nú seinustu árin hafði hann sérstaka ánægju af því að fylgjast með yngstu börnunum og langafabörnunum.  Afi vildi gjarnan hafa fjölskylduna í kringum sig.   Við sem eldri erum munum eftir fjölskylduútilegum þar sem hljóðfærin voru dregin fram og mikið sungið, en söngurinn var einmitt eitt af áhugamálum afa okkar.  Öll munum við skemmtilegar stundir á heimili afa og ömmu en þangað var alltaf gott að koma.
Afi fylgdist alla tíð vel með öllum tækninýjungum og var fljótur að tileinka sér þær.  Hann var t.d.kominn á níræðisaldurinn þegar hann festi kaup á gervihnattardiski og stytti það honum stundir síðustu árin.
Nú er elsku afi horfinn okkur um stund en minningarnar ljúfar lofa góðan endurfund.

Við þökkum þér alla ástúð
á umliðnu tímans safni.
Við kveðjum með klökkum huga
við kveðjum í drottins nafni.
                (HH)

Afabörn.

 

 

 

 

 

 

 

 


.


Alfreð Möller og
Friðný S. Baldvinsd

 

  heim