|
||
|
|
|
|
(Dagur. 2.maí 1988) Síðastliðinn föstudag var kvödd hinstu kveðju nágrannakona okkar og vinkona, Friðný S. Möller. Friðný var fædd á Akureyri 16.10.1918. Foreldrar hennar voru hjónin Baldvin Benediktsson frá Steðja í Hörgárdal og Kristín Guðmundsdóttir frá Hvammi í Hrafnagilshreppi. Friðný gekk árið 1937 í hjónaband með Alfreð Möller frá Siglufirði og undanfarinn áratug hefur heimili þeirra verið í Furulundi 11a. Ekki verður hér fjölyrt um ævihlaup Friðnýjar Möller, enda aðrir til þess hæfari. Hins vegar er bæði ljúft og skylt að minnast í nokkrum orðum og þakka þau ánægjulegu kynni og þann félagsskap sem af henni var. Nokkrum sinnum á ári hittumst við nágrannarnir í Furulundi 11 og áttum kvöldstund saman. Okkur til ánægju og yndisauka. Allir lögðu sitt að mörkum til að þessar stundir yrðu í senn ánægjulegar og eftirminnilegar. Enda þótt slík samskipti nágranna séu sjálfsagt ekki einsdæmi, þá veittu þessar stundir ungum og öldnum ómælda ánægju og gáfu sambýlinu aukið gildi. Enda þótt Þau Friðný og Alfreð væru allnokkru eldri að árum en við hin, þá voru þau bæði fullgildir þátttakendur í öllu okkar stússi, hvort sem um var að ræða framkvæmdir við húsið, álega sumarskemmtun, Þorrablót, jólaglögg eða hvað það gat heitið. Síðast hittumst við öll um páskana og þá var Friðný að venju hrókur alls fagnaðar á sinn látlausa hátt, hló og gerði að gamni sínu og undi hag sínum hið besta. Síst grunaði okkur þá að aðeins tæpum þrem vikum síðar yrði hún öll. Við nágrannar Friðnýjar og Alfreðs Möller viljum ekki láta hjá líða að þakka Friðnýju Möller samfylgdina, hvort sem hún hefur verið lengri eða skemmri. Með henni er genginn góður granni sem aldrei skildi annað eftir sig en það sem gott var og jákvætt. Alfreð Möller og hans fjölskyldu vottum við dýpstu samúð og biðjum honum blessunar og styrks um ókomin ár Íbúar Furulundi 11
Kveðja til ömmu. Þú brostir við brosi
sólar Þú elskaðir allt hið
góða Við þökkum þér alla
ástúð Barnabörn.
|
|
|
|
|
|