Jæja.  Ekki er maður nú rosalega virkur að segja frá því sem gerist hér í Kaupmannahöfn, hmmm...

 

En það er bara af því það er svo mikið að gerast að maður hefur engan tíma til að skrifa sko.  Eitt bréf á mánuði er líka alveg nóg, ef maður skrifar nógu mikið í það.

Október var skemmtilegasti mánuðurinn hingað til.  Hápunkturinn var ferðalag um Skandinavíu í tíu daga.  Kaupmannahöfn - Bergen - Osló - Stokkhólmur - Helsinki - Tallinn - Malmö - Kaupmannahöfn.  Með viðkomu í Hirtshals, sem er 15000 manna bær sunnarlega á Jótlandi.  Afskaplega huggulegur, en rútubílstjórinn er andstyggilegur maður.  Segi ekki meira.

Áður en haldið var af stað var miklum tíma eytt í að ákveða hversu mikið vín ætti að taka með.  Eftir grafalvarlegar umræður var ákveðið að hver ferðalangur skyldi hafa með 2 lítra af sterku áfengi í bakpokanum, eða sambærilegt magn af öðru áfengi.  Var þetta gert til að komast hjá því að fara í ríkin í Svíþjóð og Noregi sem höfðu orð á sér.  En segja má að vínið hafi lagst vel í mannskapinn og sett sterkan svip á ferðina.

 

Nú, þetta er frásagnarvert...

 

1) Ekki ferðast mjög drukkinn í dönskum lestum.  Það vekur ekki lukku hjá lestarstjórum.  En ef þið gefið dönskum samferðamönnum í glas, eignist þið vini svo lengi sem lestin brunar.

2) Ekki fara í rútu til að skoða Hirtshals.

3) Bergen er mjög falleg borg.  Allir að skoða hana.

4) Kvenfólkið er aftur á móti ekki mjög fallegt í Bergen.  En afskaplega ágengt.

5) Osló er ljót borg, og þar er ekki hægt að kaupa bjór í sjoppum á sunnudögum.  Aðra daga er það hins vegar lítið mál.

5) Ef maður er að ferðast í næturlest (en hefur ekki borgað fyrir að fá koju), er alger skylda svindla sjer í kojuherbergi.  Það gerir ferðina meira spennandi og þar að auki þægilegri.

6) Stokkhólmur er fallegur.  Næturlífið er aftur á móti ekki gott á mánudögum.

7) Allir að skoða eyjarnar úti fyrir Stokkhólmi og Helsinki.

8) Helsinki er furðuleg.  Sánan er snilld.  Tramvagnarnir anga af Vodkadrukknum rónum.

9) Gamli bærinn er í Tallinn.  Hann er reyndar líka í Stokkhólmi.  Þannig að ef Gamli bærinn í Mývatnssveit vill ekki H og H næsta sumar, skulum við bara herja á önnur mið...

10) Tallinn er mjög ódýr.  Mjög ódýr.  Og gott næturlíf.

11) Silja Line ferjan frá Stokkhólmi til Helsinki eða í hina áttina, er geggjaðasta ferja sem jeg hef upplifað.  Og ókeypis ef þú ert á Scanraili í október.

12) Annars er hægt að fara í einsdags LoveBoat ferjuferð frá Helsinki til Helsinki með það að markmiði að spila Tetris.

13) Malmö er indæll bær.

14) Það er gaman að segja fólki tröllasögur af Íslandi.  Hrútspungarnir og allt það.

 

Annars er ég þeirra skoðunar að stúdentabyltingin sé eina byltingin sem ekki hafi étið börnin sína.  Klámbyltingin er líklega að gera það í þessum töluðu orðum.  Lífskjarabyltingin er umdeildari.  En semsagt stúdentabyltingin virðast hafa virkað.  A.m.k. í Kaupmannahöfn.

Hér eru fáir tímar, ágætir kennarar sem leggja sig fram við að miðla efninu, og hlustað er á nemendur.  Það er allt sem þarf.

 

Nú er kominn nóvember.  Næturmyrkrið lengist.  Dagarnir styttast.  Skammdegisþunglyndið á næsta leiti eða hvað.  Það snjóar svosem ekki enn.  Reyndar finnst mér miklu skemmtilegra að ferðast í dönsku metróunum eftir að ég hætti að borga í hann.  Það gerir ferðirnar meira spennandi.  Annars ætla ég að skreppa í tíudagaferð til Bretlands bráðum og hitta spúsuna í Glasgow.  Með viðkomu í Lundúnum.

 

En áður en það gerist ætla ég að leggjast yfir námsbækurnar.  Því verður þetta ekki mikið lengra í bili.

 

Hvenær verða annars jólatónleikar?  Sjáumst þá.