Fróðleiksmolar Fróða
Spyrjið
Fróða um hvað sem er. Og svarið kemur innan skamms.



Spurningar og svör:
Hvernig á að búa til geisladisk?
Sko.
Ef maður setur fjögur kíló af sykri í tunnu, dálítið vatn og ger útí og nær í nokkra róna, og lætur þá drekka það sem er í tunnunni þá ertu kominn með hljómsveit. Svo þarf nokkur einföld hljóðfæri sem ekki er hægt að meiða sig á og loka allt heila klabbið inní lítilli kompu og viti menn.... eftir nokkra daga koma fölleitir, skjálfandi, uppþornaðir, stoltir rónar með geisladisk í höndunum.

Mig langar til að vita: Er bráðlega hægt að nota gerviþyngdarafl svo að menn geti gengið á venjulegan hátt í geimskutlum? Beggi.
Jú sjáðu til. Kraftarnir fjórir sem stjórna öllu sem er, eru í raun aðeins einn frumkraftur. Æfingin skapar meistarann. Þegar við náum tökum á þessum krafti þá getum við svifið um í þyngdarleysi heima í stofu eða gengið um með jafn þungum skrefum og við viljum í geimskutlum úti í geimi. Enginn nema þú ræður ferðinni. Jæja.
Kveðja
Fróði

Sæll nú Hér er önnur spurning sem ég hef verið að velta fyrir mér. Er alheimurinn endalaus? Ef ekki, hvar eru þá mörkin og hvað er hinumegin. Beggi
Jú sko sjáðu nú til. Alheimurinn er talinn vera að þenjast út. Mörkin liggja þar sem fyrstu ljósgeislarnir frá Stóra-Hvelli eru komnir núna, þ.e. í 10-20 milljarða ljósára fjarlægð frá miðju Stóra-Hvells. Miðja þessi er þó ekki til og hefur aldrei verið það vegna þess að í upphafi var ekkert rúm og því var heldur engin miðja!
Við erum komnir aðeins út fyrir mörk hinnar mennlegu skynjunar í þessu dæmi. En samkvæmt ályktunum mínum þá er alheimsrúmið ekki algjörlega evklíðskt, það er að segja stysta leið milli tveggja punkta er ekki endilega bein lína. Þung stjarna sveigir rúmið (í sínu næsta nágrenni) til þannig að stysta leiðin fyrir ljósgeisla, sem á leið fram hjá henni og er á leið frá einum punkti til annars, verður bogin.
Nú. Allur efnismassi alheimsins hlýtur þá að sveigja heildarrúmið á sama hátt. Spurningin er þá bara hvernig það sveigist. Ef það sveigist "jákvætt" þá er alheimurinn "lokaður" og endar í sjálfum sér ef hann breiðist út nógu lengi, og þá hlýtur ljósgeisli sem sendur er frá jörðinni að koma aftur eftir nokkrar silljónir alda úr gagnstæðri átt, svipað og þegar maður gengur í vesturátt en kemur svo eftir nokkur ár á sama stað úr austurátt eftir að hafa farið hring í kringum jörðina. Sé sveigja rúmsins jákvæð þá þýðir það jafnframt að heimurinn muni í fyllingu tímans síga saman aftur og hann gerir það væntanlega áður en hann nær í skottið á sér.
Svo gæti sveigjan verið "neikvæð" og þar með er alheimurinn "opinn" og rúmið takmarkalaust svo langt sem það nær! Þ.e.a.s. í aungblikinu nær rúmið náttúrulega ekki lengra en þangað sem fyrstu ljósgeislanrnir eru komnir, þ.e. í 10-20 milljarða ljósára fjarlægð frá "miðju" Stóra-Hvells. Það stækkar þá bara jafn óðum og ljósgeislarnir breiðast út. Og þeir munu aldrei ná í skottið á sér. Fyrir handan þessa ljósgeisla er ekki einu sinni tómarúm heldur er þar ekki neitt. Enginn tími, engin orka, ekki neitt. Ef þetta er raunin þá mun heimurinn halda áfram að þenjast út að eilífu.
Í þriðja lagi gæti verið að alheimsrúmið sé ekki sveigt og að stysta leiðin milli tveggja punkta sé bein lína (=evklíðskt rúm). Þá er alheimurinn "flatur" og þá mun hann þenjast út löturhægt, einskonar ógnarjafnvægi þar sem útþenslan réttsvo hefur við þyngdaraflinu sem togar vetrarbrautirnar saman.
Ég hef ekki gert upp við mig hver þessara kenninga er réttust en þó finnst mér það líklegast að rúmið sé sveigt og hafi neikvæða sveigju, að heimurinn muni þenjast út að eilífu og að nýtt efni geti orðið til úr engu. Jæja.
Kveðja
Fróði

spurning fyrir Fróda.
getur verid ad í undir vitundinni sé geimd vitneskjan um sköpunina og samhengid?

Takk fyrir spurninguna Sen.
Jú á því er enginn vafi.
Og ef þú keðjudrekkur 10 bolla af rótsterku kaffi á 3 mínútum þá finnur þú líka sjálfur svarið í huga þér og efast ekki meir. Önnur leið er að vinna stanslaust í 3 vikur án þess að sofa og leggjast svo fyrir á 22. degi og dreyma vakandi, því þú ert náttúrulega þá orðinn of þreyttur til að geta sofið. Þá mun þetta allt ljúkast upp fyrir þér. Jæja.
Kveðja Fróði

jæja FRóði kondu nú með góða uppskrift við timburmönnum...og ég spyr drekkur maður ekki rétt þegar maður dettur íða?
Takk fyrir spurninguna félagi.
Jú sko sjáðu nú til. Uppskrift að timburmönnum er einfaldlega að detta hressilega í það og reykja 2-3 sígarettupakka á einu kvöldi. Þá muntu æla úr þér magasýrunum og það kalla ég sko timburmenn. Ráð við timburmönnum eru öllu flóknara mál
Uppskriftir gegn timburmönnum eru mýmargar til, hér koma nokkrar:
Eitt gamalt og gott ráð gegn timburmönnum er að hætta að drekka klukkan tólf á miðnætti og láta renna af sér áður en maður fer að sofa. Þetta virkar held ég bara oftast.
Sumir drekka bara meðan þeir standa uppréttir og fá sér svo alkaseltser eða parkodin-töflu fyrir svefninn og svo aðra í morgunsárið. Þetta er ekki óbrigðult. Í jurtalækningabókinni er sérstaklega mælt með sölum gegn timburmönnum af því þau eru svo sölt. Það er dálítið ókræsilegt að briðja söl draugtimbraður og skjálfandi á sunnudagsmorgni en svo eru held ég til einhverjar töflur unnar úr sölum sem gætu verið það sem þú ert að leita að. Þá má nefna að drekka hráa eggjahræru eftir fyllerí (ég held að þetta auki bara timburmennina). Nú flestir rokkarar fá sér bara afréttara og fara svo í vinnuna. Jamm og jæja.
Kveðja Fróði

Er mjólk svört í myrkri?
Jú sko. Já, t.d. fíflamjólk þegar hún hefur staðið og þornað upp um stund, hún verður svört eða a.m.k. dökk , hvort sem það er ljós eða myrkur. En venjuleg kúamjólk held ég að sé alltaf hvít, eða mér er ekki kunnugt um annað. Þetta þarf náttúrulega að rannsaka eins og alla hluti sem ekki eru alveg sjálfgefnir. Athugaðu hvort þeir vita þetta ekki á vísindavefnum hjá Háskólanum væni, þeir hafa oft svörin á reiðum höndum. Jæja.
kveðja Fróði


Á maður að trúa draumum???
Tjaaaaaa..... Já í flestum tilfellum myndi ég gera það. Það á að minnsta kosti að taka mark á draumum og hagnýta þá í vökunni. Sagt er að sagan af Dr. Jekyll og Mr. Hyde hafi orðið til í draumi höfundarins og gott ef Paganini dreymdi ekki heilu sónöturnar sem hann skrifaði svo bara upp í dagrenningu. Sá sem fann upp saumavélina sá lausnina í draumi og sjálfum Fróða hefur meira að segja vitrast í draumi hvar skórnir hans lágu týndir úti í garði. Þeir mögnuðustu fara út úr líkamanum í svefni og fara í flugferð með fullri meðvitund. Þetta hef ég allt fyrir satt og sjaldan er dagdraumur fyrir engu. Jæja
Kveðja Fróði

maður eldist kollvikið stækkar,hvernig ræktar maður hár á HAUSINN FRÓÐI
Jú sko sjáðu nú til gamli minn. Gott og gamalt ráð er að safna síðum lokkum öðrum megin á hausnum og greiða þá svo þvert yfir skallann. Þetta þykir hentugt og í alla staði lekkert nema náttúrulega í vindi og getur þá virkað kauðalegt og jafnvel svolítið fráhrindandi fyrir konur með viðkvæman smekk en mér finnst þetta gera menn gáfulegri. Því ævintýralegra sem hárið er þeim mun gáfaðri er maðurinn sem stendur undir því. En því minna sem hárið er þeim mun vitlausari einstaklingur, þetta sést á því að börnin fæðast hárlaus. Hipparnir söfnuðu miklu hári enda voru þeir gáfaðasta kynslóð sem komið hefur fram á jörðinni frá því á síðustu ísöld. Þeir voru svo gáfaðir að þeir fríkuðu út á gáfunum en slíkt hendir nú margar mannvitsbrekkurnar eins og við vitum öll. Jæja, en þetta var útúrdúr. Hvernig ræktar maður hár á hausnum? Ef ígræðsluleiðin er ekki farin þá er hægt að notast við mixtúru sem ég hef fundið upp nýlega. Sko maður fer út um miðnæturbil með skóflu og grefur 10 sentimetra djúpa holu og mígur ofan í hana. Svo lætur maður ánamaðk synda í hlandpollinum 5 hringi réttsælis og 5 hringi rangsælis. Næst er kollinum díft ofan í pollinn og faðirvorið hneggjað á meðan. Ef þetta er gert og hár fer ekki að vaxa á kollinum innan hálfrar mínútu er maður einfaldlega of vitlaus til að hár geti vaxið á kollinum. Þó er ekki fullreynt fyrr en í fimmtu tilraun. Jæja
Kveðja Fróði

Mig langar að vita af hverju Andrés Önd vefur alltaf um sig handklæði þegar hann kemur úr baði fyrst að hann gengur svo aldrei í buxum.
Já það er nú af því að þegar fiðrið er blautt þá sést í sprellann á honum, en svo þegar það þornar þá hverfur sprelli. Þess vegna gera endur það alltaf á sundi. Jamm og jæja.
Kveðja Fróði


Ég vil beina einni spurningu til Fróða: Ef mætast myndu í geimbardaga stjörnuspillir úr Star Wars og Enterprise úr Star Trek, hvort skipið myndi fara með sigur af hólmi? Með fyrirframþökk fyrir birtínguna.
Já látum okkur sjá.
Ef Logi geimgengill væri í stjörnuspillinum og kallinn með oddhvössu eyrun væri í Enterpræsnum þá væri mjög tvísýnt um úrslit því þeir eru báðir góðu gæjarnir ekki satt, og ef nú tveir góðir gæjar mætast í bardaga á tveimur rosagóðum geimskipum þá hlýtur það að enda með jafntefli eða þá að markaðurinn ræður, þannig að sú eldflaugin vinnur sem bíógestir halda með, oftast þessi nýrri, en nú eru þær sjálfsagt jafngamlar og önnur orðin til sem iðnnjósna-knappskot út úr hinni, líklega hefur Georg Lúkas fundið þetta allt saman upp og einhver stolið hugmyndinni frá honum enda er hann svo óheppinn, konan fór frá honum og skildi hann einan eftir með hrúgu af ætlleiddum börnum og hann bara fór að búa til Star Wars ímyndunarheim þar sem hann í rauninni er logi geimgengill en konan hans er Svarthöfði og þannig bætir hann sér upp skilnaðinn en svo kemur einhver á brunandi á enterprise og ætlar að ráðast á hann og þá bara skrifar hann nýtt handrit "Star Wars, episody 22 - Revenge of the producer" , þar sem hann sjálfur birtist í lok myndarinnar og skýtur niður alla leikarana í raun og veru en skilur bara svarthöfða eftir og þeir elskast að lokum á heitri sumarnótt úti í döggvuðu grasinu á plánetunni Xssooor BylZíbbb og svo renna titlarnir yfir skjáinn. ENDIR
Fróði

spurningar til Fróða. Hvort er betra að vera Þórsari eða KA-maður og af hverju? Og hvað er að vera þjóðfélagsendi?

Þakka spurningarnar, hef legið nokkuð yfir þeim en komst loks að þessari niðurstöðu:
Ég get ekki séð annað en að það sé hvort tveggja jafn slæmt að vera Þórsari eða KA-maður. Tökum Bobba sem dæmi. Hann er Þórsari frá fornu fari en konan hans trúir á KA. Hann er United-maður, hún trúir á Liverpool. Hann var í Framtíðinni, hún í Árroðanum. Hann hlustar á Megas, hún á Villa Vill.... Hann horfir á Nýjustu tækni og vísindi en hún á Nágranna, hún þrífur klósettið, hann mígur framhjá og þannig mætti lengi áfram telja. Þau eru semsagt af sitthvoru tagi eða af sitthvorum enda, einskonar þjóðfélagsendar semsé. Og þá veistu svarið við seinni spurningunni. Jæja.
Kveðja Fróði
Sigurbjörn Sævar Grétarsson spyr eftirfarandi spurninga í bréfi sínu dagsettu 23. júní 2001:
1) Er hægt að breyta eplasafa í epli? 2) Er hægt að sá Cheerios og fá kleinuhringi í staðinn? 3) Hvað er það sem lætur vatn frjósa og þá verða aftur eflilegt? 4) Hvernig getur gler verið fljótandi en samt hart og á sama stað? 5) Afhverju fær fólk grá hár? 6) Hversvegna fer fólk á
www.patreksfjordur.is ?

Jú sko sjáðu nú til. Auðvitað er ekki hægt að breyta eplasafa í epli hverslags vitleysa er þetta. Er hægt að sá Cheerios og fá kleinuhringi í staðinn? já þetta tel ég vera hægt alveg eins og að planta tannstönglum að vori og fá upp girðingastaura að hausti, þetta þekkir nú hvert sveitabarn, nú það er skortur á varma sem fær vatnið til að frjósa og varmi sem bræðir það aftur. Nú. Gler er svo seigfljótandi að það er aðeins fáum mönnum gefið að hafa þolinmæði til að fylgjast með gluggarúðum leka niður, en þetta hef ég að sjálfsögðu reynt. Fólk fær grá hár af ýmsum ástæðum, sumir gleyma bara að lita á sér hárið, aðrir lita hárið grátt , enn aðrir hugsa of mikið og þar fram eftir götunum. Nú þá er komið að lokaspurningunni: Hversvegna fer fólk á Patreksfjordur.is. Ja þessu er vandsvarað en mér finnst nú býsna fræðandi að lesa um það hvernig Kínabátarnir koma til Padró rétt grunnaðir og svo verða Helgi og Sigurjón bara að gjöra svo vel að mála allt aftur og svo er kominn nýr aðstoðarskólastjóri og greinilega margt um að vera bara. Jæja.

Kveðja Fróði

Hér er ein spurning fyrir Fróða. Er hægt að brúna kartöflur? Tær Hveðja Bergsveinn

Jamm sko. Það er hægt að brúna sykur og maka honum utan á kartöflur. Það er til uppskrift að þessu og hún er á þá leið að það þarf:

1 kg smáar stinnar karftöflur
2 mtsk sykur
1 mtsk smjörlíki.

Fyrst sýður maður kartöflurnar, flysjar þær og skolar upp úr köldu vatni eða stráir yfir þær 1/2 tsk af salti.
Svo bræðir maður og brúnar sykurinn við vægan hita á þurri pönnu.
Svo bræðir maður smjörlíkið útí og lætur malla þar til hvít froða kemur upp
Svo setur maður kartöflurnar út á pönnuna, hrærir varlega eða hristir pönnuna létt þar til allar kartöflurnar eru brúnar og heitar í gegn.

ATH! Það er vont að brenna sig á bræddum sykri. Eitt sinn var maður að brúna kartöflur og ætlaði að hrista pönnuna en fékk þá yfir sig heil ósköp af bræddum sykri. Þegar konan kom inn í eldhúsið sá hún ekkert nema brúna hrúgu á gólfinu og áleit að þetta myndu vera kartöflurnar og setti þær á fat. Þegar veislunni var lokið undruðust allir um húsbóndann, því hann var ekki vanur að hverfa svona allt í einu en eftir að hafa lofað veislumatinn fóru gestirnir sælir og glaðir heim. Um nóttina dreymdi alla veislugesti sama drauminn. Þá dreymdi að húsbóndinn kæmi sundurskorinn til þeirra og bæði þau um að skvetta úr koppum sínum í kirkjugarðinn . Allir gerðu þetta nema einn en það var hundspottið sem hafði fengið eina kartöflu. Tók hann að breytast upp frá þessu og þótti mörgum hann hafa mannsaugu og ýmsa kynlega kosti en engan grunaði þó hvað var að gerast. Það var ekki fyrr en á útmánuðum sem hann fór að missa hárið og hnusa að vinnukonunum og þá skildu menn í hverju lá. Var þá afráðið að drepa kvikindið. En hundur flýði til fjalla og safnaði um sig heilum her flækingshunda og eina kalda og dimma vetrarnótt réðst hann á bæinn ásamt hjörð sinni og át allt heimilisfólkið. Kýrnar úti í haga, með hundasúru í maga, úti er sönn saga.

Kveðja Fróði.

Hjálmar spyr: Hvort er betra kók eða pepsí? Jeg vil rökstuðning og alles.

Já sko kók er betra. Ef líkja má Pepsí við fretufýlu þá væri kók kúkurinn. Þegar við fretum þá vitum við að kúkurinn er að koma. Þannig er það einnig með pepsí, það er einungis áminning um að kók sé til.
Kveðja Fróði

Spurning fyrir fróða: Er það satt sem frægur maður heldur fram, að öll heimsins lög og textar svífi um með golunni og lendi fyrir hreina tilviljun í hauskúpu "höfundanna" og þannig er það allt í lagi ef þeir gleymi nýjasta meistaraverki sínu á filliríi því alltaf er ná af þessu dóti í norðankulinu

LONER


Þetta er alveg laukrétt LONER. Ég hef nýlega gert athugun á þessu og austanvindarnir eru alveg sérlega góðir.Þá dugar nú ekki að vera með tóma kúpu því það fýkur bara í gegn. Betra er að vera harður í skallann svo eitthvað sitji þar eftir og grasseri áður en það fýkur aftur út. Ef meistarastykki gleymist á fylleríi þá er ekkert annað að gera en að fara á annað fyllerí og gráta þetta týnda meistarastykki því það kemur aldrei aftur. Hinsvegar gæti komið góður tregasmellur í staðinn sem er jafnvel bara enn betri. Ekki taka upp á fylleríi það er yfirleitt miklu verra daginn eftir. Betra er að gleyma. Jæja.

Kveðja Fróði

Sæll Fróði

Er einhver möguleiki á að þessi kynslóð eða næsta muni upplifa mannaðar ferðir til plánetunar Mars? (kannski líkt og Total recall m/Scwarzenegger). Af hverju er ekki lengur selt RC-cola á Íslandi? Af hverju var hætt að framleiða Valas (appelsínugosdrykkur)? Mun formaður aðdáendaklúbbs H%h meika það með Selfoss? ER Nebbi Lee hættur í fótbolta og farinn að stunda tónæistina eingöngu?

kv
Addi


Tja það er bókað mál að mannaðar ferðir verði farnar til Mars fljótlega og líklega verður plantað þar gerlum til að búa til lofthjúp svo að við getum skroppið þangað í sumarleyfi innan fárra áratuga. Valas og RC-cola voru aldrei góðir drykkir og ollu krabbameini ef drukkið var eitt baðkar á dag í áratug þessvegna var hætt að selja þessa drykki. Tíminn mun leiða það í ljós hvort A. Long meikar það með Selfoss en hann verður að gera þessi einkunnarorð sínum ef vel á að fara: Þetta er ekki spurning um að geta heldur að þykjast geta. Þá er ég að tala um að mæta alltaf í nýstraujuðum íþróttagalla á allar æfingar og spjalla við þjálfarann lon go don um nýjustu handboltafræðikenningar og ef þú ert að keppa og stekkur upp og þú hittir ekki markið þá áttu að detta niður og meiðast og láta bera þig út af. Á leiðinni út af áttu að hella þér yfir dómarann og skrifa svo grein eftir leik í bæjarblaðið um það hvað dómgæslan hafi verið hrikaleg og hvað andstæðingarnir hafi verið grófir. Að lokum vil ég sejga það um Nebba Lee að hann hættir örugglega aldrei alveg í fótbolta, hann á eftir þjálfaraferil, líklega í kvennaliði en tónlistin verður sjálfsagt alltaf með í spilinu. Jæja.

Kveðja Fróði



Í hvers konar business ert þú? Ingvar Teitsson spyr 2003-12-02 14:27:25, ingvar@fsa.is,

Þetta er spurning um að svara spurningum, ekkert annað hmmm...jamm og jæja

Kveðja, Fróði

 

Gvernig næ ég honum upp

(Spyrjandi sem ekki vill láta nafns síns getið)

Sko. Ef hefbundnar leiðir duga ekki, þá er ég t.d. að vísa til þess að fara í eltingarleik í glímugalla Ármanns, þá eru til ýmsar góðar bækur sem hjálpa, hver man ekki eftir Sjafnaryndi og svo er ég að setja á markaðinn Fróðlegar Bólfarir eftir sjálfan mig sem tekur á öllum helstu vandamálum í samlífi hjóna og henni fylgir einnig hljómsnælda með kynlegum hljóðum sem ég hef hljóðritað úti í nattúrunni þegar ég hef átt samlífi þar við undirleik indversks snákatemjara (nánar auglýst síðar).

Kveðja, Fróði

Nína spyr: Hvernig næ ég fíflamjólk úr fötum ?

Ef ekki dugar að hella henni þá þarf að eima föturnar með sérstökum tækjum sem ég hef nýlega fundið upp og safna þannig fíflamjólkinni í serstaka tanka en föturnar breytast þá í viðarkol (ef þær eru úr viði). Viðarkolin má þá nota til að sía, t.d.  ef fíflamjolkin er notuð til ölgerðar, þannig nýtist eimtækið í tvöföldum tilgangi.

Kveðja, Fróði

Addi Maze spyr:

Sæll Fróði

Takk fyrir að vera til og vera jafn fróður og raun ber vitni.  Án þín væri
engin siðmenning, list né líf almennt.
Ég hef verið að spá í nokkrum hlutum.  Getur þú sagt mér hvers vegna þjóðin
gerir ekki byltingu núna er trúður er orðinn forsætisráðherra okkar
Íslendinga?  Hvernig nær trúður að verða forsætisráðherra?  Hvenær fáum við
almennilega stjórn á Íslandi?  Þá vinstri stjórn?  Er Steingrímur J. ekki
yfirburðarmaður?

Hvenær verð ég heill í öxlinni?  Mun ég spila aftur?  Verður tappi um jólin
er ég kem heim?

Takk fyrir og góðar stundir..
Addi Maze

Ummmmmm sko. Takk fyrir spurningarnar. Það segja vísir menn að allar þjóðir fái þær ríkisstjórnir og þau yfirvöld yfir sig sem þær eiga skilið. Ef þetta er rétt og Halldór er trúður þá erum við hin það líklega flest líka og ekki ætla ég að bera á móti því. Ég held að tími Steingríms og umhverfissinnaðra vinstri stjórna muni koma þegar USA hrynur og heimsvaldastefnan með. Þetta gæti verið á næsta leyti ef Goggi Búss vinnur forsetakosningarnar í nóvember því hann og Pútín munu halda áfram að æsa upp öfgamenn í röðum múhameðstrúarmanna þangað til hryðjuverkaaldan breytist í heimsstyrjöld, eða því sem næst og þá hlýtur heimsbyggðin að fara að skoða málin í nýju ljósi. Best væri ef heimskapítalisminn og bókstafsarmur Islam eyddu hvort öðru í þessu stríði þannig að eftir stæðu nokkrir hófsamari trúðar eins og ég og þú sem gætu þá byrjað upp á nýtt. Þá verður tími tækifæranna fyrir byltingarmenn heimsins og spurningin er hvort við ættum ekki að láta til okkar taka. Samkvæmt spádómum mínum og Nostradamusar mun 3. heimsstyrjöldin koma og þá á tiltekinn Íslendingur að leika stórt hlutverk í endurreisnin siðmenningarinnar. Ég legg til að þú leggir handboltann á hilluna og notir skrokkinn, gáfurnar og andríkið í eitthvað meira uppbyggjandi en að kasta klístrari leðurtuðru í smettið á bölvandi berserkjum, ég held að ballettinn sé tildæmis leið til að ná innra jafnvægi og með útbreiðslu hans næst meiri friður í þjóðarsálum heimsbyggðarinnar. Kínversk alþýða er fyrir löngu farin að stunda svipaða leikfimi á götum úti en við bönnum allt slíkt hér þegar háttsettir kínverjar koma í heimsókn, þvílíkt frelsi !. Kannski ættir þú að leiða friðsama byltingu gegn Halldóri Ásgríms og hyski hans með þýðum ballettdansi á götum úti hvar sem hann kemur, það hlýtur að fara í taugarnar á honum sem gæti endað með því að hans innra eðli kemur í ljós, við munum jú atburðina á torgi hins himneska friðar. Mundu bara að standa sem fastast ef hann þykist ætla að keyra yfir þig á ráðherrajeppanum þá lympast hann niður og man vonandi eftir gömlu góðu samvinnuhugsjóninni sem framsóknarflokkurinn byggði á. Það voru ekki miklir kærleikar milli íhaldsins og framsóknarmanna í upphafi 20. aldar en nú er allt gjörbreytt og það slitnar ekki á milli þeirra og hvurn andskotann á það að þýða að draga Ísland inn í stríð við Araba í Írak, gömlu Mesópótamíu? Það er eitthvað bogið við stjórnmálin ef það þurfa alltaf að vera til ímyndaðir andstæðingar útí heimi til að berjast við. Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað er það ekki?  Fyrst voru það Danir, þá kommúnistar og nú arabar. Hverjir næst? Þeir eru að fela eitthvað, Davíð, Dóri og Goggi búss.  Svo mokgræðir kallinn á eigin kvótakerfi á meðan sjáfarþorpin tærast upp eitt af öðru. Þetta er svo klikkað að það er ekki um annað að ræða en að stefna á tappaæfingu um jólin og fara yfir þessi mál. Vonandi verður friðsöm bylting þá þegar hafin þarna fyrir sunnan, ég styð allar friðsamar aðgerðir til að steypa þessari ríksisstjórn af stóli. Eitt er víst að Steingrím vantar meiri míkt í sinn leik því hann er líka farinn að berjast við vindmyllur nú þegar hann gæti einmitt verið í blaki í góðum fíling. Í þeirri íþrótt mætast aldrei stálin stinn því netið skilur á milli og þannig ættu stjórnmálin að vera. Hann á að vera rödd skynseminnar eins og hann hefur alltaf verið en ekki láta draga sig útí skítkast þó að yfirgangur hinna "staðföstu" fylgisveina Davíðs hafi verið með ólíkindum, t.d. þegar þeir völtuðu yfir utanríkismálanefndina þarna og studdu gogga í nafni þjóðarinnar. Það var einn af svartari blettum í sögu Íslendinga. Jæja nú er best að hætta...

Kveðja, Fróði

 

Hefur Fróði einhvern tímann svarað því hver tilgangur lífsins er? Hvað einkennir rétta og góða lifnaðarhætti? Svo vil jeg endilega fá spádóma frá Fróða fyrir næsta og næstu ár, bæði fyrir Helga og hljóðfæraleikarana og annað (svona eins og völvan í Vikunni), því ég þykist vita að Fróði geti séð framtíðirnar. Að lokum vil ég fá að vita hvað Fróða finnst um Pál Óskar Hjálmtýsson.
2004-10-02 18:33:50, Hjálmar,

Tja það er náttlega þannig að tilgangur lífsins er að vera en það er bara svo misjafnt hvað mennirnir eru og þessvegna er tilgangur lífs þeirra svo mismunandi og ekki hægt að gefa út neina ákveðna línu fyrir allan mannskapinn. Auðvitað eiga menn að reyna að finna þetta út sjálfir en hér eru nokkur góð ráð til þess að lifa rétt og finna þetta út: 1) Ekki reyna að vera annar en þú ert. 2) Vertu hress og ekkert stress nema þegar þú ert fúll vertu þá brjálaður 3) Láttu konuna vita hver ræður á heimilinu 4) Farðu reglulega út að ganga með köttinn og hugleiddu tilgang kattalífsins 5) Rokkaðu lítillega þegar það á við 6) Eldaðu allavega 4 sinnum í viku 7) Vittu hver er bróðir þinn og sjá hvort hann mun þyggja matarboð þitt 8)  Vertu erfiður við nágrannann 9) Rækta garð þinn 10) Forðastu samneyti við lítilmenni 11) Eyða skaltu fé þínu og bankans 3) Skulda ekki náunga þínum 7) Habbðu aldrei áhyggjur af neinu. 19) Drekktu kaffi í Hagkaupi og spjallaðu við búðarstelpurnar, skrifaðu niður verð vörutegunda í minnisbók 18) Hafðu skoðanir á öllu og liggðu ekki á þeim t.d. ef vöruverðið í Hagkaup er of hátt 17)  ... og þannig mætti áfram telja en þetta er nóg í bili.

Nú Páll Óskar er liðtækur söngvari og ágætis homsi að mínum dómi það er verst hvað hann fer fyrir brjóstið á Árna greyinu Johnsen sem þyrfti aðeins að víkka sjóndeildarhringinn. Það heldég nú...jæja Fróðaspáin 2005 verður náttlega birt um áramótin að sjálfsögðu.

kveðja, Fróði

Hjálmar: Nú er spurning til Fróða: Hvað finnst þér um heimspeki og heimspekinga, þ.e.a.s. samstarfsmenn þína. Verður þú mikið var við falsspekinga í þínu fagi?? Af hverju er dagskrá Ríkissjónvarpsins svona leiðinleg? Hverjir vinna Meistarakeppnina í ár?

Mér finnst flestir heimspekingar vera alltof flæktir í orðagjálfri eins og sást til dæmis á Páli rektori Skúlasyni sem var í sjónvarpsviðtali um daginn að útskýra eitthvað um tilgang lífsins og hamingjuna, það var ekki heil brú í þessari þvælu hjá honum, lífið er mun einfaldara en þetta. Ég hugsa að ríkissjónvarpið væri skemmtilegra ef það sleppti svona viðtölum og sýndi frekar fleiri þætti um færibönd og iðnað eða veruleikaþátt um þingmann sem veit ekki að hann er hálfviti þar koma margir sjálfstæðismenn til greina. Það verður líklega spútnikliðið frá Vatikaninu sem vinnur meistaradeildina að þessu sinni.

Kveðja Fróði

 

Addi Maze  er með spurningar til Fróða: Hver drap Kennedy? Var George W. Bush með hjálpartæki í kappræðunum við Kerry? Er Bush heimskasti forsetinn í sögu Bandaríkjanna? Er Björn Bjarnason veruleikafirrtur maður? Á ekki að endurvekja stórlið á borð við Vask, Narfa, Árroðan, Eflingu og Augnablik?

Þessu er fljótsvarað. Það var Onassiss sem drap Kennedy, Goerg Búss er vélmenni sem er fjarstýrt af J.R. í Dallas, hann er í raun alveg tómur. Björn Bjarna er andkristur sem dreymir um að gera ísland að herveldi, rétt eins og Pétur Blöndal sem ætti að senda til Abu Graib í jólapakka með Ástþóri Magnússyni. Það á að leggja niður fleiri lið eins og til dæmis KA og Þór og skipta út handboltanum fyrir þrautakóng og höfrungahlaup þá geta líka áhorfendur tekið virkan þátt og það á að leggja niður landsliðin í fótbolta og handbolta, þau valda vonbrigðum ár eftir ár og eru til algjörrar óþurftar miklu frekar en forsetaembættið, það á að leggja rækt við forsetann og Dorrit og reyna að framrækta fornnorrænu konungagenin sem eru mjög sterk í Óla. 

Kveðja, Fróði

602. Spurningar til Fróða: Éf það rignir og sól skín á sama tíma á það til að myndast regnbogi, en hvers vegna sjáum við bara hálfan en ekki allan hringinn? Ég las að ef maður borðar Cocoa Puffs þá sé önnur hver skeið bara sykur. Er þá nóg að henda úr annari hveri skeið til að forðast sykurinn? Fer ekki að koma nýr diskur með H&h? Hvað fannst Fróða um fjölmiðlafrumvarpið?
2004-10-12 23:17:01, Maze,
 

Af hverju sjáum við ekki maðkinn sem skríður í moldinni? Af því að hann er oní jörðinni fattarðu og það er alveg eins með regnbogann, helmingurinn af honum er oní jörðinni og þessvegna sjáum við hann ekki. Það er alveg eins með sannleikann sko ef önnurhver skeið af kókópuffsi er hreinn sykur hvað er þá í hinum skeiðunum? Jú auðvitað líka sykur. Það er nefnilega bara hálfur sannleikur að önnurhver skeið sé eintómur sykur skilurðu og þannig er það alltaf í fjölmiðlunum að menn segja bara frá þeim helmingi sem hentar eigendunum þessvegna þarf að setja lög sem dreifa eignaraðildinni en ég bara skil ekki af hverju biskupinn er ekki búinn að skipta heiminum á milli Davíðs og Óla það gerist kannski þegar Davíð framselur Bobby Fysher til Bandaríkjanna því þá hleypur Óli örugglega til og lætur drepa Viktor Kortsnoj á næsta skákmóti Hróksins og færir rússneska sendiherranum höfuðið að gjöf. Ef það opnar ekki augu biskupsins fyrir völdum og áhrifum Davíðs og Óla í heimsmálunum þá veit ég ekki hvað þarf til. Fjölmiðlafumvarpið er bara lambasparð í túttubyssu í þeim hildarleik. En á meðan þessu fer fram þá mun H&H-ið halda ótrautt áfram og gefa út nýtt efni 2005 eða 2006 finnst mér líklegt.

Spurning: “Hver er þessi karl sem við mennirnir erum.  Samanber slagorðið ‘við erum karl menn við tippum!’  Er alveg öruggt að við séum ekki kerling og þá réttara að hrópa ‘við erum íslensk kerling menn, við tippum!’  Eða erum við kannski eitthvað allt annað?

Dulnefni:  Spurull.

Já þarna er greinilega verið að gefa í skyn að það séu eingöngu karlmenn sem hafa typpi  en það er ennþá ósannað. Það þarf nú ekki að leita langt til að finna hið gagnstæða því frænkur okkar í dýraríkinu kvenkyns hýenur hafa einmitt typpi og því er ekki ólíklegt að slíkt fyrirfinnist líka á meðal mannanna. Svoleiðis að ég tek undir það með spyrjanda að þeir sem hafa typpi þurfi að láta athuga hvort þeir séu karlmenn eða kvenmenn, það ætti ekki að vera nokkur vandi að fá tíma hjá kvensjúkdómalækni, slíkir menn geta örugglega skorið úr um þetta. Það er mun betra að fá þetta bara á hreint strax og velkjast ekki í vafa alla tíð þá verður maður mun meðvitaðri um eigin líkama og fullur sjálfstrausts.

Kveðja, Fróði

845. Spurningar til Fróða: Kemur nýr diskur með H&h á þessu ári? Var það rétt hjá Róberti Marshall að segja af sér? Hvenær verður Steingrímur J. forsætisráðherra? Hvers vegna gekk íslenska landsliðinu í handbolta ekki betur en raunin varð í HM í Túnis?
2005-01-30 16:20:38, Maze,

kannski, eimmitt, aldrei, afþvíbara

Kveðja, Fróði

 

Spurning:  “Háæruverðugi Fróði.  Nú er það svo að þyngdarlögmál Newton’s takmarkar mjög frelsi manna til hinna ýmsu athafna.  Væri skynsamlegt að fá bæjarstjórnina á Akureyri til að breyta því með reglugerð, eða hnekkja því jafnvel alveg úr gildi?  A.m.k. innan bæjarmarkanna.”

 Dulnefni: Spurull.

Já þetta er skynsamleg ábending. Ég hef reyndar nokkrum sinnum storkað þyngdarlögmálinu þegar ég keyri upp á kantsteina og svoleiðis þá hoppar maður gjarnan upp úr bílstjórasætinu um stund, kannski væri sniðugt svona í leiðinni að fjölga kantsteinum og leggja þá meira þvert yfir göturnar en leyfa jafnframt meiri umferðarhraða ég hugsa að það myndi hjálpa.

Kveðja, Fróði

Spurning: “Mikli spekingur, herra Fróði.  Þeir sem ekki reykja verða oft fjúkandi illir þegar kveikt er í sígarettu.  Þeir bólgna jafnvel og blána af reiði.  Sumir fá útrás með því að semja gífuryrði sem svo eru prentuð á tóbaksumbúðir, eins og:  “Reykingar valda dauða”; “Reykingar eru mjög skaðlegar fyrir þá sem eru nálægt þér”; ”Reykingar stífla slagæðar og valda kransæðastíflu og heilablóðfalli”.  Er þessi gríðarlega reiði ekki líkleg til að valda þeim, sem eru hvað ákveðnastir í andstöðu sinni við reykingar, háum blóðþrýstingi og alls kyns stress-tengdum sjúkdómum, auk hugarangurs og sálarkvölum.  Getur verið að þessi taumlausa reiði sé jafnvel hættulegri heilsu manna en reykingar?”

 Dulnefni: Spurull.

Tja þetta eru nú dálítið leiðandi spurningar en ég held að þetta sé alveg rétt athugað hjá þér, þú ert greinilega fjandi skynsamur maður. Hver man tildæmis ekki eftir Preben Elkjær danska landsliðsmanninum í knattspyrnu sem reykti þrjá pakka af Camel á dag og var langbestur í liðinu?  Og hver man ekki eftir því þegar Viktor Kortsnoj púaði sígarettureyk framan í Jóhann Hjartar í einvíginu sem Viktor vann? Á sama tíma auglýsti Jóhann að hann drekkur minnst eitt mjólkurglas á dag. Þarna er ekki annað að sjá en að sígarettureykingar séu af hinu góða og líklega hefðu fleiri danir átt að reykja í þessu landsliði þá hefðu þeir kannski náð Evrópumeistaratitli í það skiptið. Nei menn ættu ekki að fetta fingur út í aumingja reykingafólkið sem ofan á allt þarf jafnvel að híma úti í stórhríð til að fá að reykja í friði sem leiðir til þess eins að menn krækja sér í lungnabólgu vegna vosbúðar. Það er nú skrítin leið til að fyrirbyggja sjúkdóma.

Kveðja Fróði

 

Ég var samt að spá hvort að Fróði vildi vera svo vænn um að segja okkur hvað honum finnist um að Bobby Fischer sé orðinn Íslendingur. Nú eigum við Íslendingar besta skákmann sögunnar! Fróði var þetta rétt "múf"?
2005-03-23 10:47:56, Maze,

Jebb ég er hrifinn af þessu. Loksins einhver sem þorir að opna munninn og rífa kjaft og ef við verðum leið á honum þá bara afturköllum við ríkisborgararéttinn hann stakk upp á því sjálfur þannig að hann verður ekkert sár. Ég hef ekkert við þetta að athuga. Hugsa sér að vera sjötugur fyrrum heimsmeistari og þurfa að híma bak við lás og slá í hátt í 1 ár fyrir að spila skák! Hverskonar er nú það? Það er eitthvað rotið í Ameríku ef þeir ætla að gera mál úr þessu.

Kveðja Fróði

Fróðaspáin 2005 - 2010:

Ég sé ungan og reiðan mann fara hamförum á spjallsíðu Helga og hljóðfæraleikaranna, það er eitthvað að angra þennan unga og reiða mann. Hann leitar svara en finnur ekki, það virðist enginn nenna að svara spurningum hans og það fer í taugarnar á honum. Það er ekki gott. Svo sé ég mikinn og æstan múg fylgja þessum manni á tónleika og þar mun renna upp fyrir þeim ljós sem aldrei slokknar.

Kveðja Fróði

Hvað finnst Fróða um að Mikjáll Jakkson hafi verið sýknaður?
2005-07-01 20:41:10, Maze

Hann hlýtur þá bara að vera saklaus auminginn. Það er nú meira hvað börnin láta illa við hann eins og hann vill allt fyrir þau gera. Þetta lýsir bandarískri æsku best, hún er spillt, illgjörn, drykkfelld, liggur í klámblöðum og reynir að misnota réttarkerfið til að svíkja peninga út úr saklausum velgjörðarmönnum. Það ætti að hýða þessi börn opinberlega og senda þau úr landi fyrir uppátækin.

Kveðja, Fróði

 

Mikli spekingur, Fróði!
 
Hver yrðu viðbrögð Halldórs Ásgrímssonar ef hann yrði nú skyndilega ásakaður um að vera forsætisráðherra?  Yrðu þau eins og ávallt þá er vegið er að honum.  Nefnilega að segja að um fleipur, aðdróttanir og dæmalausar gróusögur væri að ræða, eða myndi hann grípa til enn rótækari aðgerða?  Myndi hann þegja þunnu hljóði?  Myndi stjórnin springa?
 
Dulnefni:  forvitinn.

Hann yrði líklega mjög sár. En svo myndi hann jafna sig og snúa vörn í sókn og saka fréttamanninn um slæleg vinnubrögð. Þvínæst myndi hann bera fyrir sig lög um persónuvernd og friðhelgi heimilisins og neita að svara frekari spurningum. Það þætti mér allavega skynsamlegt af honum. Nú stjórnin myndi þá væntanlega springa í kjölfarið og Halldór yrði Seðlabankastjóri í sértsöku útibúi sem væri búið að sérsmíða fyrir hann. Það yrði svona stór peningasundhöll og þar myndi Halldór bjóða vinum sínum í bað reglulega, öllum nema Streingrími J., hann yrði útundan. Það held ég nú.

Kveðja Fróði

Spurningar til Fróða: Hvað finnst þér um að loka Kristnesspítala yfir sumartímann?  Er þetta ekki skandall? Svo hef ég verið að spá í öðru. Hvernig myndaðist heimurinn?  Erum við virkilega kominn af öpum?  Er líf á Mars?
Þakka kærlega fyrir mig. Maze

Ég bíð eiginlega eftir því að Kristnesspítala verði lokað alveg og honum breytt í hundaheilsuhótel fyrir ráðherratíkurnar það fer alveg að gerast samkvæmt spádómum mínum. Nú heimurinn varð jú til þegar eldur og ís mættust og Ýmir var sleiktur útúr saltsteini af beljunum og Ask og Emblu rak á land, þetta með apana er tómur misskilningur þeir eru hliðargreinar á þróunartrénu en mannkynið er meginstofninn. Það er frekar rólegt líf á Mars en ef það er ekki of seint að helga sér land þar þá myndi ég drífa í því ef ég væri þú. Mér skilst að auðjöfrar og ævintýramenn séu þegar farnir að kaupa upp pláneturnar í von um að finna þar óþrjótandi námur í framtíðinni svoleiðis að nú er gullið tækifæri til að tryggja afkomendum sínum fjárhagslegt öryggi. Það er kannski eðlilegt að þú ályktir út frá þessu að við séum komin af öpum en ég tel það almennt ekki vera.

Kveðja Fróði.