Týnda platan
Nokkru
eftir að diskarnir Græni fuglinn og Til Afríku komu út var ráðist í að safna
saman tiltæku efni á stóra plötu. Upp úr kössunum komu allskonar skrýtnar
hljóðritanir og meðal annars gleymdar demoupptökur af gleymdum lögum, eiginlega
týnt efni sem kom í leitirnar og þótti svo gott að það varð upppistaðan í
plötunni. Ekki síst vegna þessa fékk platan heitið Týnda platan og hér er semsé
að finna fjölbreyttar upptökur, allt frá kynngimögnuðum spuna upp í talsvert
fyrirfram ákveðinn tónlistarflutning. Platan inniheldur 18 lög og fæst í Verslun Helga og
hljóðfæraleikaranna.