Græni fuglinn - smáskífa


Eftir að diskurinn Bréf til Stínu var gerður tók við langur kapítuli í sögu H&H þar sem hvorki gekk né rak í tónlistarsköpuninni. Hljómsveitin eyddi þó drjúgum tíma í æfingahúsnæði sínu í yfirgefnu starfsstúlknahúsi Kristneshælis við að setja saman og taka upp músík en menn voru einhvernveginn aldrei ánægðir með árangurinn. Í gegnum tíðina hefur verið talað um draugagang í Kristneshæli og það má telja meira en líklegt að friðlausar sálir hafi komið hér við sögu. Þeim fullyrðingum til stuðnings þá skal bent á að ýmislegt undarlegt gerðist á þessum tíma, menn villtust á leiðinni heim og urðu næstum úti á hundrað metra vegarspotta og upptökurnar hljómuðu allt öðruvísi daginn eftir að þær voru gerðar. Þá fundust í upptökugræjunum hljóðritanir sem enginn kannaðist við og hljómuðu mjög framandi og oft logaði ljósatýra í æfingahúsnæðinu þegar allir voru farnir heim. Þetta verður tæplega skýrt með fullgildum rökum öðruvísi en að ókunn öfl hafi lyft sér á kreik og lagst eins og mara yfir hljómsveitarhúsnæðið og alla sem komu þar nálægt. Þegar búð var að hljóðrita heilan helling af lögum sem ekki þóttu nógu gott efni á disk sendi sveitin frá sér smáskífuna innihaldGræni fuglinn til að friða æstan múginn en það dugði nú skammt. Platan inniheldur smellina "Júrí Gaggarín", "Íslandi allt" og "Græni fuglinn", fyrri tvö lögin eru einnig á Týndu plötunni. Græni fuglinn fæst í Verslun Helga og hljóðfæraleikaranna.