Til Afríku - Blúsar og barnagælur

 

Á meðan draugabælið í æfingahúsnæði H&H var hreinsað af óhreinum öndum sat Helgi heima í stofu með gítarinn og upptökugræjurnar og tók upp þennan disk ásamt nokkrum tiltækum aðstoðarmönnum einkum Hjálmari á kontrabassa. Þarna er ýmislegt góðgæti að finna sem ratað hefur alla leið inn á tónleikaprógrömm H&H í breyttum búningi sumt en annað ekki. Tvö lög af þessum diski, Heimilislæknirinn og Þriðji heimurinn, rötuðu jafnframt inn á plötuna Meira Helvíti í rokkbúningi.  Diskurinn fæst í verslun Helga og hljóðfæraleikaranna.