Launblót í 1000 ár


"Launblót í 1000 ár" er afmælisgjöf Helga og hljóðfæraleikaranna til íslensku þjóðarinnar í tilefni af 1000 ára afmæli Kristnitöku og segja flestir spegúlantar að þetta sé eitt það besta sem bandið hefur látið frá sér um hríð. Eins og stundum fyrr var diskurinn tekinn upp "læf" inn á diskabrennara og er því ómetanleg samtímaheimild um það hvernig Helgi og hljóðfæraleikararnir hljómuðu sumarið 2000. Ástralskt "diddilídú" er nýjung í íslensku popplífi sem kveður sér hljóðs á þessum diski, þanið af lungum hollenska þúsundþjalasmiðsins Georgs Hollanders. Flest lögin á disknum eru tekin úr Þjóðlagasafninu en einnig eru nokkrar rímur og tvö frumsamin lög. Diskurinn er fáanlegur í öllum betri verslunum, s.s. Verslun Helga og hljóðfæraleikaranna.