Landnám
"Landnámið" er fyrsta og eina rokkópera Helga og Hljóðfæraleikaranna til þessa. Jafnframt er óperan fyrsta efnið sem hljómsveitin gaf út og var hún tekin upp "læf" í heilu lagi (u.þ.b. 45 mín) inní svefnherbergi á segulband í nóvember 1990. Gefin voru út u.þ.b. 30 eintök af hljómsnældum og verkið var aðeins flutt einu sinni (fyrir fullu húsi), þar sem bryddað var upp á þeirri nýjung að gera stutt kaffihlé á miðjum tónleikum. Óperan sem hefur verið ófáanleg um árabil er nú gefin út í annað sinn og í þetta skipti á geisladiski í tilefni af 10 ára afmælinu. Diskurinn er fáanlegur í Verslun Helga og hljóðfæraleikaranna hér á síðunum.
Í "Landnáminu" segir frá ævintýrum Þóris feita, þrælum hans, kerlingu og ótal frillum sem flýja með honum undan ánauð Haraldar hárfagra í Noregi til hins ónumda eylands í norðri. Rakin er sagan í bundnu og óbundnu máli af siglingunni yfir hafið, papadrápi, veislum, nágrannaerjum við Ingólf Arnarson og atburðarrásin nær hámarki í magnaðri framtíðarsýn Þóris feita sem nær allt til dagsins í dag. Undirleikurinn er rafmagnaður, enda er þetta rokkópera en þó leyna þjóðlegu áhrifin sér ekki og víða er sem langspil gægist fram undan rafmagnssnúrunum.