Helgi og hljóðfæraleikararnir
Á vormánuðum 1992 var diskurinn "Helgi og hljóðfæraleikararnir" hljóðritaður í Stúdíó Samveri undir stjórn Geirs Brillians. Hann býr nú í Ástralíu. Efni disksins er það elsta sem um getur í sögu bandsins þótt upptökur færu fram á eftir "Landnáminu". Diskurinn er nokkurskonar safndiskur, inniheldur 16 af heitustu lögum hljómsveitarinnar frá 4-5 fyrstu árunum. Hljóðfæraskipanin var hefðbundin, eins og í Landnáminu: bassi, gítar, trommur og söngur, en auk þess var nokkrum "sampl"-hljóðfærum bætt við í Samveri.
"Helgi og hljóðfæraleikararnir" fást nú á Versluninni hér á þessum síðum.