FYRIR HANDAN
Hérna megin við ána eru bændur að bera á tún
og þeir vaka yfir ánum daga og nætur
örþreyttar húsmæður blessa allan búsmalann, blessa allan búsmalann
en fyrir handan
er Hjörleifur að brugga landann
Hérna megin við ána eru bændur að huga að slætti
laugardag seint í júní
hamast á nallanum bakveikur bústólpinn
snýr og rakar næturnar löngu
en fyrir handan
er Hjörleifur að sjóða landann
Hérna megin við ána eru hrímaðir fjallstoppar
haustverk eru bændanna, stinga úr húsunum sigggrónir lófar
og sárar iljar stýra spaðanum
svo þreyttir og óhreinir að sumir fara í bað
en fyrir handan
er Hjörleifur að drekka landann
Hérna megin við ána er alltaf best og heima
og lofum heimsku nágrannans í miðjum vetrardrunganum
og Nallinn hann er steindauður í 15 stiga frostinu
ætli það sé ekki bara best að fara og athuga hvernig það gengur
með Hjörleif og landann, hinum megin við ána, fyrir handan