Endanleg hamingja


textar (og lög) Diskurinn "Endanleg hamingja" var gefinn út um jólin 1998 í hundrað tölusettum eintökum og seldist upp á nokkrum vikum. Hér var brotið blað í sögu hljómsveitarinnar því rafmagnsgræjurnar voru lagðar á hilluna (í bili) og gömlu verkfærin tekin fram, s.s. harmonikka, kontrabassi o.fl og einnig bætt við (alvöru) fiðlu og þverflautu. Diskurinn er allur tekinn upp "læf" heima í stofu, beint inn á geislaskrifara. Sérstakt afbrigði þessa disks "Óendanleg hamingja" er nú fáanlegt (í ótölusettum eintökum) í öllum betri búðum, t.d. Verslun Helga og hljóðfæraleikaranna.


Jafnframt því að leggja rafmagnshljóðfærin á hilluna var hugað sérstaklega að útliti hljómsveitarmeðlima sem var ekki upp á marga fiska. Eina leiðin var því að ráða kvenfólk til starfa og þótti mörgum áhorfanda fengur að og fannst nú allnokkuð spunnið í bandið, og svei mér ef þau áttu nú ekki bara framtíðina fyrir sér í músíkinni líka. Af þessu leiddi að sjálfsögðu að gömlu góðu grúppíurnar tíndu smám saman tölunni en allskyns karlfauskar á öllum aldri fóru að mæta á tónleika og töldu sig allir vera aðdáandi númer eitt.