Bréf til Stínu

Reykurinn fyllir stofuna

ég sit við borðið

totta pípu

Úti gnauðar vindur

en í skini lampans

sé ég brosið þitt á myndinni

Skrifa þér línu nefni ágæta kartöfluuppskeru

og að göngur séu á næsta leiti

Það er bara einhver uggur

einhver vægðarlaus geigur

í hvíslandi gnauði þessara haustvinda

og presturinn er skilinn.

Mér er sagt

að mannlífið sé fagurt í Danmörk

en dauðinn er hann

jafn tilkomumikill og hér

jæja Stína.

Jæja Stína,

gott á fiðlan

að eiga þig að