SJÚKRAHÚSSORPIÐ
Hér liggur þú grafinn angi í sjúkrahússorpinu
og máfarnir syngja þér sálma drottins alsherjar
og rotturnar veita þér blessun og kasta rekunum
á meðan hrafninn hnitar krossmark yfir haugunum.
Í nótt þá dreymdi mig stað
þar sem lömbin hvíldust hjá ljónunum
og niður við ána sér léku lítil börn að seglskútum.
en gangir þú að kvöldi til fram hjá haugunum
ef heyrir þú grátur sérð flöktandi veru í húminu
og komi hún til þín skríðandi að hliðinu
þá spyr hún hvernig það gangi annars í djamminu.
Í nótt þá dreymdi mig stað
þar sem lömbin hvíldust hjá ljónunum
og niður við ána sér léku lítil börn að seglskútum.