Húsið

Húsið það stendur á hólnum

og það horfir niður að á

og ég geng um hlaðið

horfi til himins

er bara svona að spá

Það er heiðskýrt

upp á himninum miðjum

en í hlíðunum, er þokan grá

 

Þó að húsið mitt sé bölvað hreysi þá ertu samt velkominn.

Þó að húsið mitt sé hálfhruninn kofi þá gakktu samt glaður inn.

 

Í garðinum er

gnótt allskyns blóma

sem bíða þess að

hausti senn

og þá er hér kjörið

að skreppa á skíði

og halda svo jól

ef þú verður hér enn

En ef þú ferð hér hjá

þá mundu það eitt

að vegurinn endar

hjá snarbröttum hömrum

og þar fyrir neðan

er ekki neitt.

 

Þó að húsið mitt sé bölvað hreysi þá ertu samt velkominn.

Þó að húsið mitt sé hálfhruninn kofi þá gakktu samt glaður inn.

 

Til baka á tónlistarsíðu
Til baka á textasíðu