ÉG ÆTLA TIL HELVÍTIS
Ég ætla til himnanna
því að þangað er leiðin greið.
Hún liggur upp brekkuna og svo ofar og ofar.
Kannski mun einhver sakna mín
kannski var einhver sem beið.
Kannski mun einhver segja
Því var miður, því miður.
Minningargrein með mynd að mér
birtist í öllum blöðum
Þar sem sagt er frá gæsku minni
í löngum röðum.
Og þeir sem eftir lifa
þeir ljúga upp á mig
Að lúfmenni hafi ég verið
hið mesta jú og besta