GRÁ TILFINNING

 

Grá tilfinning

á gráleitu hausti.

 

Mig langar að sjá blikið í augunum þínum,

sjá varirnar geiflast.

 

Blá tilfinning

í djúpbláu hausti.

 

Mig langar að finna krumpurnar í kjólnum þínum,

sjá hárið sveiflast.

 

Rauð tilfinning

eins og haustlitir trjánna.

 

Mig langar að strjúka hálsinn þinn

mig langar að fá þig alla

 

Grá tilfinning

á gráu, gráu hausti

 

Mig langar að fara eitthvað burt

ég ætla að flytja til fjalla.