DREYMIR
Dreymir fyrir daglátum,
kaldlyndum griðkonum,
rykföllnum poppstjörnum,
vergjörnum barnfóstrum.
Mig dreymir fyrir daglátum,
galtómum bjórflöskum,
úr eldgömlum partíum,
gráleitum minningum.
Dreymir fyrir daglátum,
grasstrá í vindinum,
vatnið í fossinum.
Það má búast við reymleikum.
Fer með bæn á hverju kvöldi
en um leið og augun lokast
Þá er ég hrifinn á slóðir þess sjáandi
Vökustaurar koma að engum notum.
Og mig dreymir
Dreymir fyrir daglátum
og óorðnum atburðum.
Mest þó fyrir andlátum
en það er ekkert líf líkhúsum.
Dreymir fyrir daglátum
ryðguðum reiðhjólum
ógetnum unglingum
suðurlandsskjálftanum.
Mig dreymir fyrir daglátum
ef ég sef þá fyrir ólátum
í aðgangshörðum draumkonum
með meirapróf í gandreiðum.
Fer með bæn á hverju kvöldi
en um leið og augun lokast
Þá er ég hrifinn á slóðir þess sjáandi
Vökustaurar koma að engum notum.
Og mig dreymir