UM DAGMÁLABILIÐ

 

Um dagmálabilið.

Þegar hinir sváfu

þú sagðir mér drauminn þinn væna.

Um þig og það

og fólkið og fjöllin

og lundinn þinn stóra græna.

 

Þú ert eins og jólin

þú ert falleg, góð og hrein

ég hlakka til þín

ég hlakka svo til þín

þú ert meyjan mín einasta ein.

 

Svo var það um nón,

að áliðnum slætti

að ég gaf þér gætur.

Ég brýndi ljáinn

stóð og starði

það var sem ég hefði fest rætur.

 

Þú ert eins og jólin...

 

Af öllum dagsins

kukkutímum

er miðnættið mér mætast.

Því það er þá

og bara þá

sem sætustu draumarnir rætast

 

Þú ert eins og jólin...