Í djúpinu

Píanóleikarinn brosir

eins og síðustu hundrað árin.

Aldrei hefur hann soltið

þó úr stórri fjölskyldu sé.

Skefjalaus er gleðin

í þreyttum vörum

sem sveigjast upp

eins og í spennitreyju.

Í djúpinu tekur þorskur

ofan hattinn,

býður góðan dag.

Píanóleikarinn er alltaf

fullur á laugardögum

Annars veit ég ekkert

hvort hann kunni á píanó

Því hann er aldrei heima

hann er alltaf á sjó

Og á morgun fer hann

í sinn síðasta túr

 

Í djúpinu tekur þorskur

ofan hattinn,

býður góðan dag