Bréf til Stínu
"Béf til Stínu" var skráð á fjögurrarása AKAI-upptökumixer yndir jólin 1999. Enn var bætt í hljóðfæraflóruna, í þetta sinn klarinetti, útkoman varð áttamanna hljómsveit sem hljóðritaði þennan disk. Lögin langflest glæný og höfðu mörg hver aldrei verið flutt á tónleikum þegar þau voru tekin upp. Diskurinn er fáanlegur í öllum betri verslunum, s.s. Verslun Helga og hljóðfæraleikaranna.