Welcome to the mIRC Homepage! Íslenska mIRC hjálpin.
Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri.  Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda.
Íslenska mIRC hjálpin

Að sækja og setja upp mIRC
Helstu stillingar (Options)
Skráasending DCC hluti mIRC
Kerfisvalmynd mIRC
Notaðu mIRC hraðar
 Vírusar og ófögnuður á IRC
 Upplýsingar og vörn gegn LIFE_STAGES vírusnum 
Geturðu ekki tengst IRC?
Algengar spurningar um IRC

Aðrir vefir um IRC

Íslenski Spjallrásalistinn

Heimasíða Björgvins
Námsaðstoð í stærðfræði
Póstur til vefstjóra
 

 

Notaðu mIRC hraðar

Síðast uppfært 20. sept. 2004

Afritun og innsetning texta

Afritun texta.
Merkið texta með músinni eins og gert er í ritvinnslu. Textinn afritast um leið og músarhnappi er sleppt. Viljir þú afrita texta nákvæmlega eins og hann birtist, heldur þú niðri Shift hnappi meðan textinn er merktur.

Innsetning texta (líming).
Texti er límdur inn í hvaða textareit sem er með hnappasamstæðunni Ctrl-V eða Shift-Insert.

Athugið
Afritaður texti geymist á klemmuspjaldi tölvunnar og því er hægt að líma hann inn í önnur forrit að vild. Til dæmis er hægt að afrita vefslóðir úr mIRC og líma inn í vefskoðara og öfugt.

Sé ætlunin að afrita allt sem fram kemur í rása- eða einkaglugga, er fljótlegast að nota aðgerðina Buffer. Þá er smellt á táknið sem er efst í vinstra horni gluggans og valið Buffer-Save.

Endurtekning á áður skrifuðum texta.
Notið örvahnappinn upp til að endurtaka það sem áður hefur verið skrifað. Nokkrar síðustu setningar geymast og hægt er að fletta gegn um þær með örvum.


  Þessi síða er gerð af Björgvin Árnasyni með samþykki höfunda mIRC.  Öllum er frjálst að vísa í hana og nota efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið.  mIRC® er skrásett vörumerki.
Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC® is a registered trademark of mIRC Co. Ltd.