Síðast uppfært  21.04.05
Welcome to the mIRC Homepage! Íslenska mIRC hjálpin.
Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri.  Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda.
Íslenska Internet hjálpin

Að sækja og setja upp mIRC
Helstu stillingar (Options)
Skráasending DCC hluti mIRC
Kerfisvalmynd mIRC
Notaðu mIRC hraðar
 Vírusar og ófögnuður á IRC
 Upplýsingar og vörn gegn LIFE_STAGES vírusnum 

Geturðu ekki tengst IRC?
Algengar spurningar um IRC


Aðrir vefir um IRC

Íslenski Spjallrásalistinn



Heimasíða Björgvins
Námsaðstoð í stærðfræði
Póstur til vefstjóra
 

Mig langar að þakka ykkur frábærar undirtektir á liðnum árum og vona að við eigum áfram góð samskipti.
Þegar ég kom fyrst á IRC ´96 vantaði tilfinnanlega leiðbeiningar á íslensku um þetta efni. Ég tók mig því til og hóf að þýða enska textan sem til var og vann það verk úti á sjó veturinn og vorið ´97. Fyrstu 5 vefsíðurnar komu upp vorið ´97 og síðan hef ég haldið þessum vef gangandi eins og tími minn leyfir.

Um mIRC

Spjallrásaforritið mIRC er sennilega það vinsælasta sinnar tegundar í dag.  Höfundur þess heitir Khaled Mardam-Bey og hófst hann handa við frumgerðina 1994.  Fyrsta almenna útgáfa forritsins hét mIRC v2.1a og kom út 28. feb. '95.  Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan og hefur höfundur ásamt hjálparfólki verið ötull við að endurbæta forritið og senda frá sér uppfærslur oftar en auga á festir.

mIRC er deiliforrit (shareware) sem hægt er að nálgast endurgjaldslaust á vef mIRC CO. Ltd.  Ef þér líkar við forritið er mælst til þess að þú skráir þig hér og greiðir höfundum fyrir notkunina svo halda megi áfram þróun forritsins fyrir okkur öll.

mIRC v6.16 er komið 7. júlí 2004

Mér hefur ekki gefist tími til að skoða þær breytingar sem gerðar hafa verið, en hér er fyrst og fremst um villuleiðréttingar að ræða.

Þessi síða er gerð af Björgvin Árnasyni með samþykki höfunda mIRC.  Öllum er frjálst að vísa í hana og nota efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið.  mIRC® er skrásett vörumerki.
Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC® is a registered trademark of mIRC Co. Ltd.