| Íslenska
mIRC hjálpin
Að
sækja og setja upp mIRC
Helstu
stillingar (Options)
Skráasending
DCC hluti mIRC
Kerfisvalmynd
mIRC
Notaðu
mIRC hraðar
Vírusar
og ófögnuður á IRC
Upplýsingar
og vörn gegn LIFE_STAGES vírusnum
Geturðu
ekki tengst IRC?
Algengar
spurningar um IRC
Aðrir
vefir um IRC
Íslenski
Spjallrásalistinn
Heimasíða
Björgvins |
Erfiğleikar
viğ ağ tengjast irc.isnet.is
Ég hef stundum átt í erfiðleikum með að tengjast
IRCinu og fengið ýmis villuboð svo sem "you are not
welcome ..."
Ástæður geta verið ýmsar og
ekki alltaf gott að sjá þær hverju sinni. Reglan
er sú að reyna fyrst að tengjast netþjóni
sem næstur okkur er (Ísland), síðan einhverjum
á norðurlöndum (Lulea, Svíþjóð)
og svo koll af kolli.
1. Það fyrsta sem ég geri oftast er að
endurræsa tölvuna. Mjög oft gengur tenging eins og í
sögu á eftir, þó svo þetta virðist
ekki rökréttur kostur. Ég hef talað við kerfisfræðinga
um þetta og það virðist sem þetta sé
eitt af því sem Mr. Gates hefur kallað yfir okkur Windows
notendur.
2. Ef þetta gengur ekki, þurfum við að
athuga spjaldið Connect í mIRC Options. Í efsta reitnum
á að standa IRCnet, en það er netið sem íslendingar
nota. Í næstefsta reitnum veljum við þann netþjón
sem við viljum tengjast: IRCnet: EU, IS, Reykjavik. Með því
að smella á hnappinn Edit getum við breytt stillingum fyrir
þennan þjón. Í reitinn ports er rétt
að setja 6661-6669 en það eru númer á inngöngum
á netþjóninn.
3. Farðu niður eftir þessari síðu og skoðaðu
mynd 2.

3. Við þurfum að koma við á spjaldinu Connect
- Options. Við skulum haka við Connect on startup og Reconnect
on disconnection. Síðan skulum við haka við
If not connected within og bæta við þeim tíma
í sek sem við viljum að mIRC reyni tengingu (10 - 25 sek)
og auk þess hversu oft við viljum reyna (1-99 times)
Next server in group segir að forritið á að
reyna næsta netþjón ef sá fyrsti hafnar okkur
og svo koll af kolli.
Default Server Port er 6667 en við getum breytt því.
Athugaðu að þú settir 6661-6669 í reit á
Edit Server spjaldinu og það þýðir að forritið
reynir þau númer og allt þar á milli.
Smelltu á hnappinn Advanced... og upp kemur litla spjaldið
á myndinni. Hakaðu í Use random ports.
Athugið að hér gætu ADSL
notendur með fasta IP tölu þurft að setja sína
IP tölu og haka við svo og í Local Info spjaldið og
taka þá burt hakann við Server þar.
|