1.
Inngangur
Forritið mIRC veitir
aðgang að þeim hluta Internetsins sem kallast IRC (Internet
Relay Chat) og er það sennilega vinsælasta forrit sinnar
tegundar á Íslandi. Af gefnu tilefni hef ég ráðist
í það að skrifa stuttar leiðbeiningar um uppsetningu
og notkun Windows útgáfu þessa vinsæla forrits.
Ég skrifa út frá útgáfu númer
5.91 og ef þú notar eldri útgáfu af forritinu,
gætu einstakir hlutar þess litið öðruvísi
út. Óþarfi er að hafa áhyggjur af þessu.
Forritinu er ætlað
að vera notendavænt og létt í notkun og hægt
er að nota það með Windows 95/98 og nýrri stýrikerfum.
Ég geri ráð fyrir að notandinn sé vanur
að vinna með Windows hugbúnað og kunni flest almenn
atriði varðandi gluggavinnslu og notkun valmynda og tækjastiku.
Efnisyfirlit
1.1
Stutt kynning
Með mIRC getur þú
komist í samband við tugþúsundir annara notenda
um allan heim, allan sólarhringinn. IRCið skiptis í
mörg netkerfi. Það net sem flestir íslendingar
nota heitir IRCnet og er sennilega fjölmennasta netið. Ekki
er óalgengt að notendur á því séu
yfir 100.000 á mestu álagstímum á allt að
40.000 rásum. Á Íslandi tengjumst við netþjóni
sem heitir irc.ircnet.is og algengt er að 400 til 850 manns
séu tengdir honum í einu.
Fyrir utan að "hitta"
fólk og spjalla, getur þú sent og tekið á
móti skrám, svo sem forritum, skjölum, hljóði
og myndum á einfaldan og öruggan hátt. Hægt
er að velja milli þúsunda spjallrása, íslenskra
og erlendra, stofna sínar eigin rásir eða spjalla
við aðra á einkarásum sem eru lokaðar og ekki
sýnilegar öðrum notendum.
Efnisyfirlit
2.
Að sækja og setja upp mIRC
Forritinu mIRC er dreift
sem deiliforriti (Shareware), á veraldarvefnum og koma nýjar
uppfærslur af því út nokkuð oft. Nýjustu
útgáfur má að jafnaði nálgast á
veffanginu: http://www.mirc.co.uk
en það er vefur framleiðandans. Einnig er forritið
að finna í skráasöfnum víðsvegar um
heiminn, en athuga þarf vel útgáfunúmer þess
áður en það er sótt. Það vill
brenna við að skráasöfn þessi séu ekki
uppfærð nægilega oft og þar eru ekki endilega
nýjustu útgáfur. Þegar þetta er ritað
í desember 2001 er nýjasta útgáfa forritsins
númer 5.91
Athugið!
Forritið fæst
bæði í 16 bita og 32 bita útgáfum.
Langflestir notendur eru nú með Windows 98 eða nýrra
stýrikerfi. Notir þú ennþá gamla
Windows 3.x og 16 bita innhringiforrit svo sem Trumpet Winsock, verður
þú að nota 16 bita útgáfu af mIRC.
Hægt er að nota 32 bita útgáfu með Windows
3.x ef til staðar er skráin Win32s.exe. Notir þú
hins vegar Windows 95 eða nýrra og Dial Up Networking innhringiforritið,
þá getur þú notað 32 bita útgáfuna
af mIRC.
16 bita forritið heitir
að öllum líkindum mirc591s.exe en 32 bita útgáfan
heitir mirc591t.exe Pökkuðu skrárnar með
nýjustu útgáfunum heita MIRC591S.EXE 16
bita og MIRC591T.EXE 32 bita.
Margir notendur fá
forritið uppsett frá sinni Internetþjónustu
og geta strax farið að nota það. Þó
þarf oftast að gera ýmsar breytingar og stilla eiginleika
til að fá út úr forritinu það sem
hver vill. Sért þú með gamla útgáfu
og viljir skipta yfir í nýrri útgáfu með
meiri möguleikum og betri eiginleikum, þá er einfaldast
að setja nýja forritið upp í sömu möppu
og það gamla. Við það haldast allar stillingar
óbreyttar og hægt er að nota forritið strax frá
fyrstu gangsetningu. Hér er sýnt dæmi um hvernig
mIRC er sett upp í sérstaka möppu á C:\
drifi tölvu.
Ný útgáfa
forritsins er einfaldlega dregin inn í möppuna mirc og
tvísmellt á skrána sem inniheldur það.
Uppsetningin er sjálfvirk og tekur aðeins nokkrar sekúndur.
Því næst er forritið ræst á sama
hátt og það gamla og þú sérð
í fyrstu litlar sem engar útlits- né hegðunarbreytingar.
Efnisyfirlit
3.
Grunnstillingar og tenging við netþjón (Server)
Allri IRCumferð er stýrt
af þar til uppsettum tölvum sem kallast netþjónar
eða serverar. Áður en við getum byrjað að
spjalla, þurfum við að tengjast einum slíkum.
Til þess að hægt sé að tengjast netþjóni
(server), þarf að uppfylla viss skilyrði. Fylla þarf
í nokkur spjöld í glugga sem heitir mIRC Options,
en hann hefur að geyma upplýsingar um notanda, netþjóna
og annað sem þarf til að fá aðgang að netþjóni.
Hafi forritið verið
sett upp í fyrsta skipti hjá Internet-þjónustu,
þá hefur að öllum líkindum þegar
verið fyllt í fyrsta hluta mIRC Options. Þar
er þá að minnsta kosti einn netþjónn,
svokallaður IRC Server, en gott getur verið að setja upp
fleiri til að eiga til vara ef bilun verður í þínum
aðalþjóni, en slíkt getur alltaf gerst. Nýrri
útgáfur forritsins sem fengnar eru erlendis frá
innihalda alltaf fjölda netþjóna, þar með
irc.ircnet.is undir nafninu: IRCnet: EU, IS, Reykjavik. Glugginn
mIRC Options er opnaður með 2. hnappi tækjastikunnar,
eða með File/Options úr valmyndalínunni.
Efnisyfirlit
4.
Gluggar og tækjastika
Þegar forritið
er ræst, birtist aðalgluggi þess og líkist hann
öðrum Windows gluggum með öllum þeirra eiginleikum.
Hægt er að færa hann til, stækka og minnka og
láta hann vinna í bakgrunni eins og önnur Windows
forrit.
Efst í aðalglugganum
er titillínan með nafninu mIRC, þar fyrir neðan
er valmyndalínan og því næst tækjastikan.
Á tækjastikunni eru nokkrir hnappar, sem veita aðgang
að ýmsum aðgerðum og valmyndum. Fyrsti hnappurinn
er notaður til tengingar og aftengingar við netið, því
næst koma hnappar sem opna mIRC Setup sem áður hefur
verið minnst á og eiginleikaglugga sem síðar verður
rætt um.
Efnisyfirlit
4.1
Stöðuglugginn (Status)
Við ræsingu er
einn gluggi opinn í aðalglugganum. Þessi gluggi heitir
stöðugluggi (Status) og er hann virkur allan notkunartímann.
Í þessum glugga birtast ýmsar upplýsingar
um það sem gerist frá tengingu þar til notkun
er hætt. Þegar tenging er reynd koma skilaboð um hvernig
til hefur tekist og síðan upplýsingar um fjölda
notenda á netinu, fjölda rása í notkun og
annað sem máli skiptir.
Meðan á notkun
stendur kemur fram í stöðuglugganum hverjir reyna að
hafa samband við þig, hverjir hætta á þeim
rásum sem þú ert að nota, ásamt ýmsu
öðru sem gagnlegt er að vita. Neðst í stöðuglugga
og rásargluggum er innsláttarlína, þar sem
notandi getur slegið inn texta og skipunum.
Efnisyfirlit
4.2
Rásagluggar
Hver einstök spjallrás
sem þú tengist fær sinn eigin glugga innan aðalgluggans
á skjánum. Nafn rásarinnar birtist í titillínu
gluggans og hægra megin í honum nöfn allra þátttakenda.
Þessir gluggar haga sér eins og aðrir Windows gluggar,
hægt er að færa þá, breyta stærð
og minnka þá niður í ikon án þess
að loka þeim. Gluggi sem minnkaður hefur verið niður
í ikon, sést efst á skjánum og breytir nafn
hans um lit þegar nýr texti bætist í hann.
Reyndar er hægt að ráða því hvort
nafnalistinn birtist hægra eða vinstra megin í rásaglugga
og hvort ikon lokaðra glugga birtast efst eða neðst á
skjánum. Um þetta verður rætt síðar.
Efnisyfirlit
4.3
Aðrir gluggar
Einkarás,
einkaspjall
Tvísmellir þú
á nafn einhvers þátttakenda í rásarglugga,
opnast nýr gluggi með nafni viðkomandi í titillínu.
Þetta er svokölluð einkarás og þáttakendur
eru aðeins þú og sá sem þú valdir.
Hér getið þið talað saman í einrúmi
án vitneskju annara. Gluggi einkarásar líkist glugga
almennrar rásar að mörgu leiti, nema hvað nafnadálkurinn
til hægri er ekki til staðar. Sömu atriði gilda um
glugga einkarásar og aðra glugga.
Sendigluggar
Sendi einhver annar þér
skrá á meðan á notkun stendur kemur upp gluggi
á skjánum sem tilkynnir um hver er að senda þér
og hvað. Sending fer þó ekki sjálfkrafa í
gang, heldur verður þú að samþykkja hana.
Veljir þú að taka við sendingunni, þá
fer hún af stað og þú getur minnkað gluggan
með minnkunarhnapp meðan á sendingu stendur. Í
titillínu gluggans sérð þú gang sendingar
í prósentum. Svipaður gluggi kemur einnig upp þegar
þú sendir öðrum skrár. Þú
getur strax minnkað þann glugga og fylgst með gangi
sendingar í titillínu. Munið að taka ekki
við hvaða skrám sem er á IRC, því
þetta er þekkt leið til að dreifa vírusum.
Efnisyfirlit
5
Stillingar forritsins, glugginn mIRC Options
Þegar
þú smellir á annan hnapp frá vinstri á
tækjastikunni, opnast gluggi sem kallast mIRC Options.
Það er hérna sem við stillum alla eiginleika
forritsins og nú verður farið yfir spjöldin hvert
fyrir sig. Lengst til vinstri er valreitur sem kallast Category: Þar
veljum við þann eiginleika sem við viljum breyta hverju
sinni.
Eiginleikarnir eru flokkaðir í 7 meginflokka
og samtals 29 spjöld þar sem hægt er að stilla
hundruðir mismunandi eiginleika. Sum þessara spjalda skipta
okkur litlu máli og flest hafa grunnstillingar sem henta flestum
notendum.
Við ráðum stafagerð, lit og fleiri atriðum
svo sem hvort mIRC táknið neðst á skjánum
blikkar þegar einhver er vill ná í okkur.
Efnisyfirlit
5.1
Spjaldið Connect
Spjaldið Connect er fyrsta
spjaldið í glugganum mIRC Setup. Þar er listi yfir
þá netþjóna sem skráðir hafa verið.
Upplýsingar um netþjón og persónulegar upplýsingar
um notanda verða að vera til staðar, annars er ekki hægt
að tengjast IRC. Hnapparnir: Add,
Edit, Delete og Sort eru notaðir til að bæta við netþjónum,
breyta upplýsingum um þá eða fjarlægja.
Hægt er að velja þjón úr listanum IRC
Servers og síðan er slegið á Connect to IRC
Server.
Full Name
Hér getur þú
sett þitt rétta nafn og mun það þá
birtast þegar einhver leitar að þér. Athugaðu
að þú getur sett hér annað en rétt
nafn, ef þú villt ekki að aðrir sjái það.
E-mail Address
Hér verður að
koma þitt rétta netfang í fullri lengd á
forminu: notandi@net.land t.d. bjorgvin@nett.is
Nickname og Alternative
Aðrir notendur þekkja
þig af gælunafninu þínu (Nickname). Þú
skalt velja þér gælunafn og slá inn í
fyrri reitinn og síðan annað til vara í seinni
reitinn. Á IRC eru að jafnaði tugþúsund
notendur og því ekki óalgengt að einhver annar
sé að nota sama gælunafn og þú valdir.
Séu bæði nöfnin þín í notkun
þegar þú ætlar að tengjast, kemur skipunin
/nick í stöðugluggann og þú verður
að slá inn nýju gælunafni áður
en tenging er samþykkt.
Invisible Mode
Ef þú krossar
í reitinn Invisible Mode, getur fólk ekki fundið
þig á IRC nema vita gælunafnið þitt,
eða sjá þig á spjallrás.
IRC
Servers
Þú getur breytt
listanum yfir IRC þjóna að vild með tökkunum:
add, edit og delete. Add til að bæta við þjónum,
edit til að leiðrétta og breyta og delete til að
taka burt þjóna.
Description
Hér kemur lýsing
þín á þjóninum og getur verið
hvaða texti sem er.
Address
Þetta er netfang
þjónsins, t.d. irc.isnet.is
Port Number
Hér kemur venjulega
talan 6667. Þetta er staðlað númer á inngangi
netþjóns. Margir þjónar leyfa tengingar
á innganga númer 6661 til 6670. Gott getur verið
að slá inn 6661-6670 í reitinn og leitar mIRC þá
sjálft að porti.
Group Name
Þessi reitur gefur
möguleika á að hópa saman þjóna.
Password
Þennan reit þarf
venjulega ekki að fylla út.
Íslenskur miðlari
er:
irc.ircnet.isAðrir
miðlarar sem gott er að hafa í bakhöndinni eru:
irc.ludd.luth.se
irc.stealth.net
irc.univ-lyon1.frNú
er hægt að tengjast þeim þjóni sem merktur
er, með því að velja hnappinn Connect to IRC Server!
Efnisyfirlit
5.2
Spjaldið Options
Connect
on startup
Sé krossað í
þennan reit, reynir mIRC að tengjast síðast notuðum
netþjóni strax við ræsingu.
Reconnect on disconnection
Ef IRC þjónn
aftengir þig án þess að þú hafir
ætlað að hætta, (þú dettur út),
þá mun mIRC strax reyna að tengjast á ný.
Popup connect dialog
on startup
Þessi kostur opnar
gluggann mIRC Connect í hvert skipti sem forritið
er ræst.
Move to top of list
on connect
Þessi kostur færir
þann netþjón sem er í notkun efst í
listann yfir netþjóna.
When connecting
Ef tenging við netþjón
mistekst, getur mIRC haldið áfram að reyna tengingu.
Þú krossar þá í reitinn If not...
og velur fjölda tilrauna í reitnum Retry og tíma
milli tilrauna í reitnum secs.
Krossaðu við Next
server in group ef þú villt að mIRC reyni nýjan
netþjón í hvert skipti.
Default Server Port
Hér væri gott að setja töluna 6667 ef ekki er
búið að fylla hann út.
Advanced...
Random local port gerir það að verkum að mIRC velur
nýtt portnúmer við hverja tilraun til að tengjast.
Efnisyfirlit
5.3
Spjaldið Local Info
Local
Host og IP Address
Local Host og IP Address
eru nauðsynlegar upplýsingar ef þú villt nota
DCC hluta IRC, en hann er notaður til að tengjast annari tölvu,
til skráasendinga og fyrir einkasamtöl. Venjulega er best
að fylla ekki í textareitina, heldur láta nægja
að krossa í reitinn On connect, always get Local Host.
IP Method
Ef þú hefur
grun um að mIRC finni ekki IP netfangið þitt á
eðlilegan hátt, skaltu skipta frá Normal til Server
í reitnum Metod. Server leiðin tekur örlítið
lengri tíma, þar sem leita þarf upplýsinga
hjá netþjóni, í stað þess að
fá netfangið úr innhringiforritinu.
Efnisyfirlit
5.4
Spjöldin Identd og Firewall
User ID
Hér setur þú
fyrsta hluta netfangsins þíns, það sem stendur
framan við @ merkið í E-póstfanginu þínu.
Ef póstfangið þitt er anna@simnet.is, þá
setur þú anna í reitinn.
System
Hér skal standa
orðið UNIX
Port
Venjulega er hér
notuð talan 113
Athugið að
krossa í reitina Enable Identd Server og Show Identd Requests.
Firewall
Fæstir notendur þurfa
að hafa áhyggjur af þessu spjaldi. Fylltu ekki í
það nema þú sért að nota staðarnet
svo sem á vinnustað. Fylgið leiðbeiningum í
viðkomandi HELP skrá, eða leitið aðstoðar
kerfisfræðings viðkomandi fyrirtækis.
Efnisyfirlit
Þessi síða er gerð af Björgvin
Árnasyni með samþykki höfunda mIRC.
Öllum er frjálst að vísa í hana og nota
efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið.
mIRC® er skrásett vörumerki.
Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC®
is a registered trademark of mIRC Co. Ltd.