![]() |
Íslenska
mIRC hjálpin.
Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri. Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda. |
Að
sækja og setja upp mIRC Aðrir vefir um IRC
|
Nokkuð er um Vírusa
og Trójuhesta á IRC og því hef ég leitað
upplýsinga um slíkt.
mIRC býður upp á einfalda og þægilega leið til að senda skrár svo sem: myndir, hljóð, texta og fleira. Því miður er algengt að fólk reyni að senda okkur ýmsar óæskilegar skrár á IRCinu svo sem script og hakkforrit sem eru eingöngu ætluð til að skemma fyrir okkur og í versta falli rústa tölvunum okkar. Upplýsingar um Life_Stages.txt.shs vírusinn LIFE_STAGES.TXT.SHS. er Ormur sem fer eins og eldur í sinu um IRCið þessa dagana og margir íslendingar hafa krækt sér í ófögnuðin. Hann dreifir sér einnig sjálfur sem viðhengi í tölvupósti til allra í addressubókinni okkar og gerir það án okkar vitundar og án þess að skilja eftir sig ummerki. Veistu að tölvan þín
er nú þegar smituð af LIFE_STAGES.TXT.SHS?
Hvernig fáum við vírusinn?
Life Stages
FW: Life Stages
Life Stages text
FW: Life Stages text
Hvernig verður vírusinn virkur?
Hvaða skaða veldur vírusinn?
Eftirtaldar skrár eru búnar til í
möppunni Windows\System:
Breytingar eru gerðar á registry skránni
(ræsiskrá stýrikerfis)
Life_Stages.txt.shs skrá er búin til í \Windows möppuna Skrá með tilviljanakenndum nöfnum er
búin til á eftirfarandi stöðum:
Regedit.exe skráin er flutt í ruslafötuna, falin og endurskýrð Recycled.vxd Eftirtöldum skrám er bætt í
ruslafötuna sem földum kerfisskrám
Hvað á að gera til að losna
við vírusinn?
Hvernig þekkjum við góðar skrár frá slæmum? Það er ekki einfalt að þekkja munin á góðum og slæmum skrám hér frekar en í pósti. Sama einfalda regla gildir þó, að taka aldrei við neinu frá fólki sem við ekki þekkjum vel og treystum rúmlega 100%. Þegar einhver reynir að senda okkur skrá, fáum við viðvörun frá mIRC og þar kemur fram nick sendanda og nafn á skránni (file) sem hann/hún vill senda. Málið er að ormar og vírusar dreifa
sér sjálfkrafa án þess að sendandinn viti
af því. Því gæti tölva okkar
besta vinar verið smituð og sent okkur skrá án þess
að hann fái nokkuð að gert. Oft veit fólk
ekki að tölvan er smituð, fyrr en einhver kvartar og því
ættum við að segja fólki frá því
ef okkur berast grunsamlegar sendingar.
Nafnið endar venjulega á punkti og 3 bókstöfum og segir það til um gerð skrárinnar. Ef nafnið endar á .jpg eða .gif er um mynd að ræða, .waw er hljóð og svo framvegis. Mjög algengt er að fólk sendi okkur skár sem geta heitið t.d. myphoto.jpg.exe og lítur það þá út fyrir að vera ljósmynd ekki satt? Svo er þó ekki, því að það er búið að rugla okkur með tveimur punktum í nafninu. Seinni punkturinn og exe heitið segja okkur að þetta sé forrit og mjög sennilega stórhættulegur vírus. Endingar eins og .bat .txt .dll og .com ættum við að varast sérstaklega líka. Hvað er hægt að gera? Við getum stillt mIRC þannig að það taki aðeins við ákveðnum gerðum af skrám, eða taki alls ekki við neinu yfir höfuð. Einfaldast er að taka ekki við neinu og það er líka einfalt að stilla þetta. Farðu efst til vinstri á skjáinn og veldu File - Options - DCC og þá færðu upp þetta spjald:
Fylltu spjaldið út eins og myndin sýnir og veldu svo Folders úr glugganum til vinstri.
Á miðju spjaldinu þar sem stendur DCC Ignore þurfum við að velja eins og myndin sýnir. Við veljum Ignore all exept:, höfum miðreitinn auðan og neðsti skiptir ekki höfuðmáli. Nú ættir þú ekki að eiga á hættu óprúttnar árásir frá öðrum IRCurum með skráasendingum, en gallinn er sá að þú þarft að taka þessa vörn af ef þú villt meðtaka myndir. Það gerirðu tímabundið, með því að velja Disabled í DCC Ignore. Vörnin fer aftur á sjálfkrafa eftir tímann sem stilltur er í neðsta reitnum, ef hakað er í Turn ignore back on.
Þessi síða er gerð af Björgvin Árnasyni með samþykki höfunda mIRC. Öllum er frjálst að vísa í hana og nota efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið. mIRC® er skrásett vörumerki. Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC® is a registered trademark of mIRC Co. Ltd. |