Welcome to the mIRC Homepage! Íslenska mIRC hjálpin.
Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri.  Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda.
Íslenska Internet hjálpin

Að sækja og setja upp mIRC
Helstu stillingar (Options)
Skráasending DCC hluti mIRC
Kerfisvalmynd mIRC
Notaðu mIRC hraðar
 Vírusar og ófögnuður á IRC
 Upplýsingar og vörn gegn LIFE_STAGES vírusnum 
Geturðu ekki tengst IRC?
Algengar spurningar um IRC

Aðrir vefir um IRC

Íslenski Spjallrásalistinn

Heimasíða Björgvins
Námsaðstoð í stærðfræði
Póstur til vefstjóra
 

Algengar spurningar um IRC (FAQ)

Síðast uppfært 28.03.05

1. Hvað er IRC?
2. Hvernig starfar IRC?
3. Hvað gerir Client? Hvert er hlutverk Servers?
4. Hvernig kemst ég inn á IRC?
5. Hvar finn ég IRC forrit (Client)?
6. Hvað fleira þarf ég til að geta notað IRC forrit?
7. Hvernig set ég upp IRC forritið?
8. Hvaða upplýsingar þarf ég að setja inn í IRC Setup gluggann?
9. Hvaða netmiðlara (Server) ætti ég að tengjast?
10. Hvaða port númer á ég að nota til að tengjast IRC?
11. Þarf ég lykilorð (Password) til að tengjast IRC?
12. Verð ég að gefa upp mitt rétta nafn (Real Name)?
13. Verð ég að skrá inn netfangið mitt (E-mail) í uppsetninguna?
14. Hvað er gælunafn (Nickname)?
15. Hvað er IP Addressa?
16. Hvað er Local Host name?
17. Ég reyndi að tengjast Server og fékk skilaboðin: "Connection refused," "Connection timed out" eða "Unknown host".
18. Þegar ég tengist fæ ég skilaboðin: "Not enough user parameters", hvað er að?
19. Hvað þýða skilaboðin "You haven't registered"?
20. Ég aftengist strax... Hvað þýðir "Ghosts are not allowed on IRC." og "You are not welcome on this server."?
21. Hvað er K-lined? Hversvegna get ég ekki tengst sumum Serverum? Hversvegna aftengja sumir Serverar mig?
22. Getur eldveggurinn (Firewall) okkar hindrað mig frá að tengjast IRC?
23. OK, ég er með uppsett IRC forrit og tengd(ur) við Server, en hef takmarkaðan aðgang.
24. OK, ég er með uppsett IRC forrit og tengd(ur) við Server. Hvað svo?
25. Hvað er rás (Channel) á IRC?
26. Nú hef ég valið rás. Hvernig tengist ég? Hvað geri ég síðan? Hvernig aftengist ég aftur?
27. Hverjar eru helstu grunnskipanirnar á IRC?
28. Jæja, nú vil ég læra flóknari skipanir.
29. Hvaða tungumál á ég að tala? Hvernig á ég að haga mér á IRC?
30. Hvað er rásarstjórnandi (channel operator)? Hvað er IRC stjórnandi (IRC operator)?
31. Hvernig stofna ég nýja rás?
32. Hvaða rásir eru góðar til að byrja á?
33. Einhver er að nota gælunafnið (nickname) mitt, getur einhver gert eitthvað við því?
34. Einhver er að nota rásina mína, getur einhver gert eitthvað við því?
35. Hjálp!! Einhver sparkaði mér og bannaði á rás. Hvert get ég snúið mér?
36. Það eru engir stjórnendur á minni rás, hvað nú?
37. Hvað er "bot"?
38. Hvað var NickServ? Kemur hann nokkurntíma aftur?
39. Hjálp, ég aftengist ef ég nota skipunina LIST.
40. Ég hef prófað /whois á mitt nafn og annara og komist að því að mitt rétta nafn kemur upp, en ekki hjá öðrum. Get ég breytt þessu?
41. Hvað er netrof (Netsplit)? Af hverju kemur og fer allt þetta fólk?
42. Hvað er Nick Collision Kill?
43. Hvað er Server-op? ---irc.server.net sets mode: +ooo Nick1 Nick2 Nick3
44. Hvað er Ident Server? Hvers vegna er ég óþekkt(ur) og hvaða máli skiptir það?
45. Hvað eru rása- og notendaeiginleikar (Channel and User Modes)?
46. Hvað gera þessar rása- og notendaskipanir?
47. Hvaða IRC þjón ætti ég að nota?
48. Aðrar hjálparskrár og spurningalistar innihalda oft meira og jafnvel annað efni. Hvers vegna?
49. Hvar get ég leitað meiri upplýsinga?
50. Lokaorð.


1. Hvað er IRC?
IRC er skammstöfun fyrir Internet Relay Chat. Upprunalega hugmyndin er finnsk og kom fram 1988, en nú eru notendur í yfir 60 löndum. IRC er netkerfi sem leyfir fjölda notenda að spjalla saman samtímis, ýmist í hóp eða einslega. Fjöldi rása og notenda á IRC er ótakmarkaður.

2. Hvernig starfar IRC?
Sem notandi keyrir þú biðlaraforrit (Client), sem tengir þig við miðlara (Server) á IRC neti. Allir miðlarar eru samtengdir og senda skilaboð milli notenda á IRC netinu. Hver miðlari getur verið tengdur nokkrum öðrum miðlurum og auk þess hundruðum notenda. Nokkur mismunandi IRC net eru til, mismunandi að stærð. Það stærsta sem kallað er IRCnet, þjónar að jafnaði um 100.000 notendum í einu. Minni net t.d. Undernet og Dalnet, eru ekki eins fjölmenn, en bjóða oft upp á meiri stöðugleika.

3. Hvað gerir Client? Hvert er hlutverk Servers?
Biðlari (Client) er forrit sem vinnur á þinni tölvu og tekur við skipunum og texta frá þér. Forritið framkvæmir nauðsynlegar aðgerðir og sendir skilaboð áfram til þess IRC miðlara (server) sem þú ert tengdur. Miðlari getur þjónað mörgum biðlurum í einu. Hann heldur saman upplýsingum um rásir og það fólk sem á þeim er, ásamt öðrum upplýsingum og sendir skilaboð frá þér til annara notenda. IRC netið samanstendur af fjölda miðlara sem allir eru tengdir saman.

4. Hvernig kemst ég inn á IRC?
Gakktu úr skugga um að eitthvert IRC forrit (Client) sé uppsett á þinni tölvu. Ef svo er ekki þarftu að nálgast það og setja upp á tölvunni. Þetta er einfalt mál, en ef upp koma vandamál þá hafðu samband við fyrirtækið sem selur þér aðgang að Internetinu.

5. Hvar finn ég IRC forrit (Client)?
Margar gerðir IRC forrita eru fáanlegar, svo sem: WSIRC, mIRC, InteRfaCe og ChatMan. Forritið mIRC er sennilega það útbreiddasta hér á landi og það má fá á veraldarvefnum á slóðinni: http://www.mirc.co.uk/index.html Fjöldi netfyrirtækja eiga auk þess skráasöfn þar sem hægt er að fá mismunandi IRC forrit. Hér eru helstu netforritin fáanleg. http://www.nett.is

Efnisyfirlit

6. Hvað fleira þarf ég til að geta notað IRC forrit?
Við gerum ráð fyrir að þú notir MS-Windows, en auk þess þarftu að hafa innhringiforrit uppsett á tölvunni. Ef þú getur nú þegar notað póstforrit, vefskoðara eða önnur Internet forrit, þá er innhringiforritið í lagi. Ef ekki, þá má nota Dial-Up innhringiforritið í Windows 95, eða sambærileg forrit fyrir Windows 3.1 Hafðu samband við fyrirtækið sem selur þér aðgang að Internetinu.

7. Hvernig set ég upp IRC forritið?
Flest forrit á Internetinu koma til þín í einni pakkaðri skrá. Betri forrit koma í skrá með nafnaukanum .EXE og nægir að flytja þessa skrá í nýja möppu og tvísmella á hana og setur hún þá forritið upp sjálfkrafa. Eftir uppsetningu þarf oftast að setja upp persónulegar upplýsingar um notanda áður en hægt er að tengjast IRC. Varðandi uppsetningu og gangsetningu á mIRC, skal vísað í Íslensku mIRC hjálpina.

8. Hvaða upplýsingar þarf ég að setja inn í IRC Setup gluggann?
Þegar IRC forrit er notað í fyrsta skipti, þarf að fylla út upplýsingar um þig og þitt netfyrirtæki. Hér er um að ræða: Nafn, Gælunafn, Netfang og fleira sem netmiðlarinn (Serverinn) þinn þarf að vita áður en tenging fer fram. Hvað þessa hluti varðar, vísa ég aftur í Íslensku mIRC hjálpina.

9. Hvaða netmiðlara (Server) ætti ég að tengjast?
Oftast er best að tengjast Server sem er landfræðilega nærri þér. Þar af leiðandi ættu Íslendingar að reyna að tengjast Íslenskum Server. Þetta er þó ekki alltaf besta lausnin og oft er best að spyrja vini og kunningja á IRC hvað komi best út hverju sinni.

10. Hvaða port númer á ég að nota til að tengjast IRC?
Port er inngangur inn á net Server. Algengast er að nota port númer 6667, prófaðu það fyrst. Margir Serverar nota líka önnur port, algengast 6661 - 6670. Hægt er að velja random port og þá mun forritið prófa fleiri en eina tölu. Notir þú ranga tölu hér, þá skilur ekki Serverinn hvað þú gerir og aftengir þig.

Efnisyfirlit

11. Þarf ég lykilorð (Password) til að tengjast IRC?
Venjulega þarf ekki lykilorð til að tengjast IRC. Hafðu hólfið fyrir lykilorð tómt. Ef þú ert beðin(n) um lykilorð og hefur það ekki, prófaðu þá að tengjast öðrum Server.

12. Verð ég að gefa upp mitt rétta nafn (Real Name)?
Nei, það er ekki nauðsynlegt. Samt sem áður verður þú ekki nafnlaus á netinu þó þú skrifir einhverja vitleysu í þennan reit. Á IRC getur þú ekki falið þig fyrir vinum né óvinum. Hafðu það í huga ef þú gerir einhvern óskunda á netinu. Falsað nafn getur að nokkru leiti varið þig fyrir nörðum netsins, en samt sem áður er hægt að rekja tölvuna sem þú vinnur á og netfangið þitt sést. Að falsa netfang er alvarlegur hlutur og getur varðað brottrekstri af Internetinu.

13. Verð ég að skrá inn netfangið mitt (E-mail) í uppsetninguna?
Hafir þú netfang (E-mail) skaltu skrá það inn. Hafir þú það ekki, getur þú skráð nafnið þitt í staðinn.

14. Hvað er gælunafn (Nickname)?
Aðrir notendur á IRC þekkja þig á gælunafninu þínu. Þú getur valið þér hvaða gælunafn sem er, allt að 9 stafir að lengd. Ekki meiga vera bil í nafninu og reyndu að forðast sjaldgæf tákn. Séríslenskir stafir ganga ekki. Engir tveir notendur geta notað sama gælunafn samtímis og stundum kemur fyrir að einhver annar hefur tekið sér þitt nafn þegar þú tengist. Þú verður þá að nota annað gælunafn í það skiptið, eða skipta algerlega um nafn til að forðast rugling. Aðeins örfá IRC net bjóða upp á einkaleyfi á nöfnum.

15. Hvað er IP Addressa?
IP Addressa er netfang eða einskonar kennitala þinnar tölvu á Internetinu. Addressan er annað hvort í formi talna td. 194.144.238.007 eða í formi IP nafns. Sum netfyrirtæki úthluta þér föstu netfangi, en önnur úthluta þér breytilegu í hvert sinn sem þú tengist. Hafir þú breytilegt netfang verður þú að vera viss um að IRC forritið þitt leiti upp IP Address og Local Host name í hvert skipti sem þú tengist. Sjá Íslensku mIRC hjálpina.

Efnisyfirlit

16. Hvað er Local Host name?
Local Host name er nafn sem þitt netfyrirtæki gefur tölvunni þinni. Þetta getur verið orð, eða nafn sem er sama og IP addressan þín.

17. Ég reyndi að tengjast Server og fékk skilaboðin: "Connection refused," "Connection timed out" eða "Unknown host".
Reyndu að tengjast einhverjum öðrum Server og athugaðu hvort það gengur betur. Sá Server sem þú reyndir að tengjast er ótengdur eða bilaður, reyndu hann aftur seinna. Sértu að nota nýtt Server nafn skaltu athuga hvort hann sé raunverulega til og hvort nokkur prentvilla sé í nafninu sem þú skráðir. Vitir þú IP númer Serversins, skaltu reyna það í stað nafnsins. Sjáðu til þess að hafa alltaf vara Server sem þú getur tengst í svona tilfellum.

18. Þegar ég tengist fæ ég skilaboðin: "Not enough user parameters", hvað er að?
Þessi skilaboð berast ef Local Host name vantar eða er rangt skráð. Athugaðu hvernig fyllt hefur verið í spjaldið Local Info í IRC forritinu þínu. Athugaðu líka hvort E-mail er rétt skráð.

19. Hvað þýða skilaboðin "You haven't registered"?
Þetta eru skilaboð til þín frá Server og hafa ekkert með skráningu IRC forritsins að gera. Fáir þú þessi skilaboð, eða ef þú aftengist frá IRC strax eftir tengingu, gæti Local Host name eða IP Address verið röng. Einfaldast er að krossa við valkostina "On connect, always get" IP Address og Local Host í Setup og ræsa síðan forritið aftur. Sjá Íslensku mIRC hjálpina. Gangi þetta ekki, þá prófaðu annan Server.

20. Ég aftengist strax... Hvað þýðir "Ghosts are not allowed on IRC." og "You are not welcome on this server."?
"Ghosts are not allowed on IRC" þýðir að þú ert í banni á viðkomandi Server. Þú getur ekki notað viðkomandi Server meðan bannið gildir. Þetta þýðir ekki að þú sért í banni á IRC. Notaðu annan Server í staðinn. Bann getur verið þrennskonar:
---Þú er í persónulegu banni. Aðeins þú sjálf(ur) berð ábyrgð á því og getur engum öðrum um kennt. Þú verður sjálf(ur) að leita lausna á því.
---Tölvan sem þú notar er bönnuð. Noti einhver annar sömu tölvu gæti hann verið ábyrgur, vitir þú upp á þig skömmina verður þú að bíta úr því. Prófaðu að nota aðra tölvu ef þú hefur aðgang að henni.
---Allt þitt svæði er bannað. Svæði getur verið: skóli, fyrirtæki, land eða netsali. Þetta er ósennilega þér að kenna. Líkurnar á að fá banninu aflétt eru hverfandi. Notaðu annan Server.
Viljir þú fá banni aflétt, skrifaðu þá til netstjóra á viðkomandi Server og hagaðu máli þínu kurteislega.

Efnisyfirlit

21. Hvað er K-lined? Hversvegna get ég ekki tengst sumum Serverum? Hversvegna aftengja sumir Serverar mig?
Sumir miðlarar takmarka aðgang við ákveðið svæði og loka þessvegna á þig, eða neita þér um tengingu. Slæm hegðun þín eða vina þinna, notenda þíns þjónustufyrirtækis, eða ákveðins lands getur valdið því að viðkomandi Server sé lokaður fyrir tengingar frá þessum svæðum. Í öllum þessum tilvikum færðu svar sem líkist þessu:

--- Attempting to connect (irc.network.net)
Local host: cheops (131.69.136.12)
Catch22 You are banned from this server
Closing Link: Catch22 [ student.uni.nl ] (K-lined)
--- Disconnected

Skilaboðin "No authorization" eru svipaðs eðlis. Miðlarinn veitir ekki þínu svæði aðgang. Stjórnandi miðlara getur ákveðið hverjir fái aðgang að miðlaranum. Prófaðu annan miðlara sem er nær þér.

22. Getur eldveggurinn (Firewall) okkar hindrað mig frá að tengjast IRC?
Það er vel mögulegt. Sennilega er mIRC eina forritið sem getur unnið yfir eldvegg í augnablikinu. Önnur forrit styðja ekki eldveggi. Vinnir þú bak við eldvegg skaltu því nota mIRC.

23. OK, ég er með uppsett IRC forrit og tengd(ur) við Server, en hef takmarkaðan aðgang.
Takmarkaður aðgangur (usermode +r) getur stafað af því að þú tengist Server sem er langt frá þér, eða ef þú eða einhver á þínu svæði hefur orðið sér til skammar (sjá 20). Með takmörkuðum aðgangi, getur þú ekki orðið rásarstjórnandi, þú getur ekki breytt ham og ekki skipt um gælunafn. Hins vegar getur þú spjallað eðlilega. Prófaðu annan miðlara sem er nær þér. Lestu meira á veffangi: http://www.funet.fi/~irc/server/restricted.html Þetta hefur ekkert með skráningu IRC forritsins að gera.

24. OK, ég er með uppsett IRC forrit og tengd(ur) við Server. Hvað svo?
Sennilega er best að skoða sig um og athuga hvað þú villt gera. Gott er að læra nokkrar IRC skipanir í byrjun. Allar skipanir byrja á skástriki, "/", og flestar eru eitt orð. Skrifir þú /help færðu hjálpartexta. /names gefur þér lista yfir öll gælunöfn, /list gefur þér lista yfir allar virkar rásir og svo framvegis. Niðurstaða skipunarinnar /list gæti litið svona út:

#hack 21 We are your worst nightmare !
#Nippon 53 Speak Japanese here please ?
#nicole 3
#hottub 76 Come in for a friendly chat.
#mirc 27 mIRC Homepage http://www-2.nijenrode.nl/software/mirc/
#irchelp 17 Ask all your IRC questions here.

Athugaðu að rásir geta skipt þúsundum og þetta er aðeins stutt dæmi. Í fyrstu línu er "hack" rásarnafnið og # er forskeyti. Á eftir rásarnafninu sérðu fjölda þátttakenda og yfirskrift rásarinnar. Öll rásanöfn byrja á # eða &.

25. Hvað er rás (Channel) á IRC?
Rás er staður á IRC þar sem fólk getur spjallað saman í hóp. Þú getur tengst rásum og hitt annað fólk þar. Sumar rásir geta orðið mjög fjölmennar og fer það eftir umræðuefni og tíma sólarhringsins. IRC rásir geta verið opnar almenningi, eða aðeins fyrir ákveðnar persónur eða jafnvel einkarásir tveggja aðila. Fjöldi rása á IRC er mismunandi og getur skipt þúsundum. Rásirnar eru hverfular að því leiti að hver sem er getur stofnað nýja rás og þegar sá síðasti yfirgefur rás, þá hverfur hún. Þegar þú hefur tengst IRC, getur þú fengið lista yfir allar virkar rásir með skipuninni /list Öll rásanöfn byrja á # eða &. Rásir merktar # eru almennar, en aðrar merktar & hafa takmarkaðan aðgang og þú getur litið fram hjá þeim. Þú getur tengst rás með því að gefa skipunina /join #rásarnafn

Efnisyfirlit

26. Nú hef ég valið rás. Hvernig tengist ég? Hvað geri ég síðan? Hvernig aftengist ég aftur?
Til að tengjast rás gefur þú skipunina /join #rásarnafn. Prófaðu td. /join #Iceland eða /join #nett Þegar þú tengist rás, þá sérðu samtöl fólks á skjánum. Það gæti litið út eitthvað þessu líkt.

<-Patt> hi flinstone
<||CAVE||> já
<||CAVE||> alveg hrikalega sætt mar !
<=FlinstonE> hallo
<-Patt> félags-fíflið ||CAVE||
<-Patt> hæ

Athugaðu að þú kemur oftast inn í miðju samtali og áttar þig ekki alltaf strax á hvað er að gerast. Til að blanda þér í hópinn, nægir að slá inn það sem þú villt segja og síðan ýta á Enter. IRC bætir gælunafninu þínu fyrir framan textann, svo þú þarft ekki að slá það inn. Hægra meginn í rásarglugganum sérðu nafnalista í stafrófsröð yfir þá sem eru á rásinni. Efstu nöfnin hafa @ fyrir framan og táknar það að viðkomandi persónur séu rásarstjórnendur. Sá sem stofnar nýja rás verður sjálfkrafa stjórnandi hennar og ræður eiginleikum hennar og því hvort aðrir notendur fá meðstjórn. Í titillínu rásargluggans sérðu nafn rásarinnar og fyrirsögn ef einhver er. Til að yfirgefa rás er notuð skipunin /part eða /leave

27. Hverjar eru helstu grunnskipanirnar á IRC?
Með flestum IRC forritum fyrir Windows fylgir hjálp. Hikaðu ekki við að nota /help skipunina.

Athugaðu að allar IRC skipanir byrja á skástriki "/".

Skástrikið fremst í línu er tákn fyrir IRC skipun. Ekki skiptir máli hvort notaðir eru litlir eða stórir stafir í skipunum. Allt sem ritað er án skástriks í byrjun skoðast sem skilaboð til annara notenda á rásinni.

HELP opnar hjálparskrána eða hjálp fyrir skipun.
LIST sækir lista yfir allar opnar rásir.
JOIN opnar rás.
PART lokar rás, (sama og LEAVE)
QUIT hættir og lokar IRC forritinu, (sama og BYE og EXIT)
NICK breytir gælunafninu þínu.
AWAY skilar skilaboðum um að þú sért ekki viðlátin(n) eða að gera annað.
WHOIS sýnir persónulegar upplýsingar um einhvern notanda.
INVITE sendir heimboð til annars notanda.
KICK sparkar notanda út af rás.
TOPIC breytir fyrirsögn á rás.
ME sendir upplýsingar um þig út á rásina.

Dæmi um skipanir.

/HELP [ skipun ] Sækir hjálp fyrir gefna skipun.

/LIST [ [ { fjöldi } ] { yfirskrift } ] Sækir lista yfir opnar rásir.
Listinn nær yfir allar rásir nema faldar, með fjölda þátttakenda og yfirskrift. Listinn getur orðið mjög langur og því er hægt að takmarka hann með því að setja inn lágmarks- og hámarksfjölda þátttakenda, svo og ákveðin leitarorð í yfirskrift.

/JOIN { #rásarnafn } Farið inn á ákveðna rás.
Þegar þú tengist nýrri rás, færðu lista yfir þátttakendur hennar, eiginleika og yfirskrift. Dæmi:
/JOIN #windows
--- Now talking in #windows


/PART [ #rásarnafn ] Þú lokar (hættir) rás. Sama og LEAVE.
/PART #windows
--- You have left #windows


/QUIT [ ástæða ] Hættir og lokar IRC forritinu. Sama og BYE og EXIT.
Ef ástæða er tilgreind, kemur hún fram á skjám annara notenda.
/QUIT Háttatími.

/NICK { gælunafn } Breytir gælunafni þínu að eigin vali.
Aðrir þátttakendur sjá gælunafnið þitt. Hámarkslengd er 9 stafir. Engir tveir geta notað sama gælunafn samtímis. Því getur farið svo að þegar þú tengist IRC sé einhver annar að nota nafnið sem þú ætlaðir að nota. Þá verður þú að velja þér nýtt nafn áður en þú getur tengst. Við vissar kringumstæður geta þó tveir haft sama gælunafn stuttan tíma. Þegar IRC þjónninn uppgötvar það verða báðir aftengdir umsvifalaust. "A nick collision kill."
/NICK Guru
--- Newbie is now known as Guru


/AWAY [ skilaboð ] Gefur til kynna að þú sért fjarverandi eða upptekin(n) við annað.
Skilur eftir skilaboð þess efnis að þú sért ekki með hugann við IRC í augnablikinu. Leiti aðrir eftir sambandi við þig, eða skoði upplýsingar um þig, fá þeir boðin frá þér. Sé skipunin notuð án skilaboða, merkir það að þú sért aftur komin(n) til starfa. /AWAY Fór að sækja kaffi.
--- You have been marked as being away
/AWAY
--- You are no longer marked as being away


/WHOIS { gælunafn } Birtir upplýsingar um einhvern notanda.
/WHOIS Guru --- Guru is master@some.network.net (Jón Jónsson)
--- on channels: @#Windows @#Windows95 #mIRC
--- on via server irc.server.net (Besti þjónninn)
--- Guru is away (malla súpu)
/WHOIS Newbie
--- Newbie: No such nickname


/INVITE { gælunafn } { #rásarnafn } Býður öðrum notanda á rás sem þú ert á.
Þú getur boðið vinum og kunningjum að koma á rás sem þú ert á. Þeir munu sjá skilaboðin: ---Guru invites you to #rásarnafn. Þetta er nauðsinlegt ef rásin er aðeins fyrir boðsgesti "invite only".
/INVITE Friend #windows
--- Inviting Friend to #windows

Fáir þú boð um að koma á rás, getur þú skrifað "/join #rásarnafn".

/KICK { #rásarnafn } { gælunafn } Sparkar notanda út af viðkomandi rás.
Á sama hátt og hægt er að bjóða einhverjum inn á rás, er líka hægt að losna við leiðindapúka af rásum. Sé einhver sem hagar sér illa, er með leiðindi eða óviðurkvæmilegt orðbragð, er hægt að þvinga hann út af rásinni. Aðeins rásastjórnendur geta gert þetta.
/KICK #windows Lamer
--- Lamer has been kicked off channel #windows by Guru


/TOPIC { #rásarnafn } { yfirskrift rásar } Breytir yfirskrift rásar.
Rásir hafa yfirskrift sem gefa til kynna umræðuefni rásarinnar. Hægt er að breyta henni með þessari skipun.
/TOPIC #windows Förum í bíó í kvöld
--- Guru has changed topic to "Förum í bíó í kvöld"


/ME { gerðalýsing } Segir fólki hvað þú ert að gera eða hugsa.
Stundum langar þig að tjá þig um hvað þú ert að gera, hvernig þér líður eða bara eitthvað sem snertir sjálfa(n) þig.
/ME vill bjóða newbie í útilegu.
- Guru vill bjóða newbie í útilegu.


28. Jæja, nú vil ég læra flóknari skipanir.
MSG Sendir einkaskilaboð.
QUERY Hefur einkaspjall.
NOTICE Sendir einkaskilaboð.
NOTIFY Segir þér þegar fólk kemur og fer á IRC. Gátlisti.
IGNORE Hundsar allt sem kemur fá ákveðnu fólki.

/MSG { gælunafn|rásarnafn } { texti } Sendir (einka) skilaboð til tilgreinds gælunafns eða rásar.
Samhliða spjalli á opinni IRC rás, getur þú líka talað einslega við einstaka notendur. Flest forrit bjóða upp á þessi samtöl í sérstökum gluggum. Þú getur notað /MSG skipunina til að senda skilaboð til ákveðins aðila og aðeins þessi aðili getur lesið þau. Svari hann þér, eða vilji einhver ná í þig, þá birtist íkon sem gefur til kynna að samtal bíði.
/MSG Kreet Aðeins þú getur lesið þessi boð.
-Kreet- Aðeins þú getur lesið þessi boð.

Persónan "Kreet" fær nú íkon á skjáinn með skilaboðunum "Aðeins þú getur lesið þessi boð."

/QUERY { gælunafn } [ texti ] Hefur einkasamtal við {gælunafn} og opnar samtalsglugga bæði á þínum skjá og hans.
Þessi skipun hefur svipaða eiginleika og /MSG að öðru leiti en því að hún opnar samtalsglugga hjá þér og viðmælanda þínum. Texti sem þú skrifar birtist á þínum skjá og viðmælandans, en ekki hjá öðrum.

/NOTICE { gælunafn|#rásarnafn } { texti } Sendir einkaskilaboð til tiltekins {gælunafns} eða {#rásar}.
Skipunin NOTICE er önnur leið til að senda skilaboð til fólks. Ólíkt /MSG opnar NOTICE ekki samtalsglugga. Líta má á það sem einskonar hvísl. Þessi skipun er fyrst og fremst ætluð forrituðum tölvum á IRC neti til að senda notendum skilaboð. Þú skalt ekki svara skilaboðum sem þú færð á þennan hátt.

/NOTIFY [ gælunafn|on|off ] Ræsir og stöðvar NOTIFY fallið, eða bætir við og eyðir nöfnum af gátlista.
Þegar þú eignast kunningja á IRC sem þú villt hitta aftur, getur þú sett gælunöfn þeirra á gátlista, (NOTIFY LIST). IRC forritið mun þá segja þér þegar þessi nöfn koma og fara.
/NOTIFY palli gunna
--- Added palli to Notify list
--- Added gunna to Notify list


/NOTIFY
--- palli is on IRC
--- resi is on IRC
--- gunna is not on IRC
--- kreet is on IRC


/IGNORE [ gælunafn|notandi@netsali ] Hundsar öll samskipti við tiltekna aðila.
Sá dagur mun koma að þú villt ekki heyra né sjá einhverja persónu á IRC. þú getur samt haldið áfram að spjalla og notað skipunina IGNORE til að sía burt allt sem viðkomandi persóna segir. Fari einhver í taugarnar á þér með rugli og leiðindaaðfinnslum, þá er skynsamlegast að hundsa hann. Hægt er að beita IGNORE á einstakan notanda, eða alla frá ákveðnum netsala. Þú mátt nota allar gerðir leitartákna (wildcards).
/IGNORE looser
--- Added looser to Ignore list
/IGNORE
--- Ignore is ON
--- Ignoring: -.-@-.unicomp.net -!-ap@159.148.109.88 -!-fishy@-.interaccess.com looser
/IGNORE looser
--- Removed looser from Ignore list


29. Hvaða tungumál á ég að tala? Hvernig á ég að haga mér á IRC?
Á íslenskum rásum er að sjálfsögðu töluð íslenska, en annars er enska algengasta og mest talaða málið á IRC. Viljir þú tala annað mál en það sem ríkjandi er á ákveðinni rás, skaltu annað hvort velja einkaspjall, eða biðja kunningja þinn að færa sig á aðra rás. Á sumum rásum er tilgreint í yfirskrift hvaða tungumál er notað. Farir þú að nota annað mál sem ef til vill aðeins þú og einn annar notandi skilja, eru mestar líkur til að ykkur verði sparkað út af rásinni og bannaður aðgangur.
Það er ekki þörf á að heilsa öllum á rásinni persónulega. Venjulega nægir að segja halló þegar komið er inn. Þú getur heldur ekki ætlast til að allir heilsi til baka. Séu notendur margir, tekur það einfaldlega of langan tíma og mikið skjápláss. Finnist þér þú verða að heilsa einhverjum kunningja sérstaklega, notaðu þá skilaboð. Það sama gildir fyrir kveðjur.
Hafðu í huga að nota ekki sjálfvirkni í forritinu þínu til að heilsa og kveðja alla á rásinni. Hver vill fá kveðju frá einhverri skynlausri tölvu? Slíkar kveðjur eru ekki bara ópersónulegar og gervilegar, heldur gera þær sendandan frekar að athlægi en að upphefja kurteisi hans.
Mundu að fólk á IRC mótar skoðanir sínar á þér af hegðun þinni, ummælum og athugasemdum. Hugsaðu því áður en þú skrifar. Sendu ekki mikið magn gagnslausra upplýsinga inn á rás eða til einstaklings. Slíkt veldur leiðindum og sennilega verður þér sparkað af rásinni, eða í versta falli hrakin(n) af IRC. Önnur hegðun sem er bönnuð á IRC:
--Ofsækja aðra notendur. Ofsókn er skilgreind sem hegðun gagnvart öðrum notanda sem veldur honum óþægindum.
--Valda leiðindum á rás með sífeldum hljóðum. (Af þessari ástæðu eru flest forrit ófær um að senda hljóðmerki).
--Hver sú hegðun sem minnkar notagildi IRC sem tjáningarmiðils.

30. Hvað er rásarstjórnandi (channel operator)? Hvað er IRC stjórnandi (IRC operator)?
Rásarstjórnandi er yfirmaður á spjallrás. Þekkja má þessa stjórnendur á @ fyrir framan gælunafn á nafnalista rásar og @ fyrir framan rásarnafn í /whois eða /uwho lista. Stjórnendur geta verið fleiri en einn á hverri rás og þeir geta sparkað þér af rásum að eigin geðþótta. Sértu ósátt(ur) við þetta, getur þú kvartað við þá eða stofnað þína eigin rás og þá orðið stjórnandi hennar.
IRC stjórnandi er persóna sem ræður yfir netþjóni (Server) sem er hluti af IRC neti. Þeir geta ekki ráðið fram úr rásavandræðum og ekki sparkað neinum út af rás fyrir þig. IRC stjórnendur blanda sér yfir höfuð ekki í mál tengd einstökum rásum. Þeir hafa öðrum og þarfari málum að sinna.

Efnisyfirlit

31. Hvernig stofna ég nýja rás?
Ný rás verður til sjálfkrafa um leið og fyrsti maður tengist henni. Með öðrum orðum: Þú ákveður rásarnafnið og einfaldlega tengist með skipuninni /join #nýttnafn. Þú munt sjá að þitt nafn er það eina á rásinni og að þú ert stjórnandi hennar. Rásir á IRC eru hverfular að því leiti að hver sem er getur stofnað nýja rás og þegar sá síðasti yfirgefur rás, þá hverfur hún.

32. Hvaða rásir eru góðar til að byrja á?
Svarið við þessari spurningu fer svolítið eftir aldri og áhugamálum þínum. Nokkrar íslenskar rásir virðast lifa allan sólarhringinn og þar finnur maður ungt fólk á öllum aldri. Helstar er þá að nefna #Iceland, #Iceland18+, #nett og #joko. Sumar aðrar rásir eru aðeins starfandi á kvöldin. Hvað erlendar rásir varðar, er allan sólarhringinn hægt að velja úr þúsundum ólíkra rása á ólíkum tungumálum og með misjöfnum umræðuefnum. Af þekktari rásum má nefna #hottub, #friendly, #chat og #ircbar. Sumar rásir eru sérhæfðar og þar er hægt að leita hjálpar með vandamál. Dæmi eru #windows95, #winsock, #irchelp, #ircnewbies og #mirc.
Til að fá lista yfir opnar rásir notarðu skipunina /list. Viljir þú aðeins fá fjölmennustu rásirnar, skrifar þú /list -min 20 og færð þá lista yfir rásir með 20 þáttakendum eða fleiri. Hægt er að nota hvaða tölu sem er. Jafnvel mjög fjölmennar rásir geta þó verið hljóðar þegar þú tengist. Ástæðan gæti verið sú að flestir á rásinni eru uppteknir við annað.

33. Einhver er að nota gælunafnið (nickname) mitt, getur einhver gert eitthvað við því?
Gælunafn eru venjulega ekki einkaeign þín. Þau voru áður skráð í tölvu í Þýskalandi, svokölluðum NickServ. Hún er nú aflögð. Það er mikilvægt að skilja að vegna fjölda notenda er einkaeign gælunafna illframkvæmanleg. Á nokkrum minni IRC netum er þetta þó hægt. Taki einhver sér þitt gælunafn meðan þú ert ekki á IRC, getur þú beðið viðkomandi að skila því, en þú getur ekki skipað honum það. Ekki þýðir að leita til IRC stjórnenda, þeir blanda sér sjaldnast í slík mál.

34. Einhver er að nota rásina mína, getur einhver gert eitthvað við því?
Fræðilega eru til milljónir af rásanöfnum, þannig að ef einhver annar hefur tekið sér þitt venjulega rásarnafn, þá veldu þér eitthvað annað. Þú getur sent skilaboð og beðið viðkomandi að fara af rásinni, en þú getur ekki þvingað þá til þess.

35. Hjálp!! Einhver sparkaði mér og bannaði á rás. Hvert get ég snúið mér?
Svarið er að aðeins ríkjandi rásarstjórnendur geta lagað þetta. Stjórnendur þurfa ekki að hafa ástæðu til að sparka þér, þeir ráða jú því sem fram fer á rásinni og hverjir fá að vera þar. Að kvarta við IRC stjórnanda eða kerfisstjóra yfir banni hefur engan tilgang og er talið einstaklega barnalegt. IRC stjórnendur blanda sér ekki í vandamál tengd rásum, það er hlutverk rásastjórnenda.
Fáir þú bann á rás, getur þú stofnað þína eigin og ákveðið starfshætti þar.

Efnisyfirlit

36. Það eru engir stjórnendur á minni rás, hvað nú?
Sá eða þeir sem réðu rásinni hafa farið út, eða hætt á IRC. Þó svo síðasti stjórnandi fari, lifir rásin áfram svo lengi sem einhver er eftir, en er hins vegar stjórnlaus að mestu. Athugaðu að gefa ekki stjórn (op) til hvers sem er. Það býður upp á að einhver sparki öllum öðrum stjórnendum og yfirtaki rásina eða skilji hana eftir stjórnlausa. Passaðu samt sem áður að gefa hæfilegum fjölda vina stjórn, svo einhver verði eftir ef netið rofnar.
Verði rásin stjórnlaus, er einn möguleiki eftir. Þú getur beðið alla að yfirgefa rásina í nokkrar mínútur meðan þú nærð stjórn aftur. Athugaðu að þú verður að fara líka og stofna rásina aftur. Þessi leið virkar sjaldan á fjölmennum rásum, vegna skorts á samstöðu og alls ekki á rásum með "bot"..

37. Hvað er "bot"?
Bot er stytting á Robot eða vélmenni. Um er að ræða forrit sem vakir yfir ákveðinni rás og vermdar hana fyrir yfirtöku. Botar eru ekki nauðsynlegir á IRC og á sumum netum eru þeir bannaðir. Leita þarf leifis hjá viðkomandi IRC þjóni áður en bot er notaður. Skiptar skoðanir eru á botum og sumir þeirra eru aðeins til leiðinda og trafala.
Áður en lengra er haldið er ástæða til að brýna fyrir þér að taka aldrei nokkurntíma á móti og nota, skipanaskrár, bot skrár né aðrar gerðir skipana frá öðrum notendum, nema þú vitir nákvæmlega hvað þær gera. Algengt er að byrjendur séu auðtrúa og geri mistök vegna "ráðlegginga" frá miður vel gerðu fólki.

38. Hvað var NickServ? Kemur hann nokkurntíma aftur?
Á EFnet var rekin tölva, staðsett í Þýskalandi, sem NickServ kallaðist. Þessi tölva hélt skrá yfir gælunöfn og bað fólk að hætta að nota gælunöfn sem ekki voru skráð á þeirra nafn. Þessi vél hefur ekki verið starfrækt síðan 1994 og ekki eru líkur á að hún verði gangsett aftur. Munið að gælunöfn eru almennt ekki einkaeign. Þrátt fyrir það eru til skráningar á vissum IRC netum, svo sem Dalnet. Þessar skráningarvélar hafa vald til að aftengja þig frá IRC ef þú óhlýðnast beiðni um að skipta um gælunafn. Þess vegna er ekki ráðlegt að hundsa skilaboðin.

39. Hjálp, ég aftengist ef ég nota skipunina LIST.
Þegar skipunin LIST er notuð, býr netþjónninn til lista yfir allar opnar rásir og sendir hann til þín. Á miklum álagstímum ræður þjónninn ekki við það magn upplýsinga sem afgreiða þarf og setur því sendinguna til þín í bið. Þegar að því kemur að senda listann til þín, leysir það út öryggisbúnað í þjóninum, sem umsvifalaust aftengir þig. Þessi öryggisbúnaður er hannaður til að aftengja fólk sem sendir frá sér meira magn upplýsinga á sekúndu, en eðlilegt getur talist. Þetta er gert til að verjast svokölluðu Floodi, en það veldur vandamálum á rásum IRC.
Því miður er ekkert við þessu að gera. Þrátt fyrir það að þú takmarkir LIST skipunina með lágmarks og hámarks fjölda, þá færðu allan listann sendan og því leysir það ekki vandamálið. Prófaðu að nota annan Server, eða bíddu nokkra stund og reyndu LIST aftur.

40. Ég hef prófað /whois á mitt nafn og annara og komist að því að mitt rétta nafn kemur upp, en ekki hjá öðrum. Mér líkar þetta ekki. Get ég breytt þessu?
Já, settu einfaldlega falsað nafn (Real Name) í uppsetninguna á IRC forritinu þínu.

Efnisyfirlit

41. Hvað er netrof (Netsplit)? Af hverju kemur og fer allt þetta fólk?
Hvað þýðir það þegar ég sé eftirfarandi? ---NickName has quit IRC (-.bu.edu eff.org)
Því miður er netrof algengt fyrirbæri á IRC. Skilaboðin þýða að NickName, sem var á sömu rás og þú, hafi verið á öðrum netþjóni (Server) en þú og þessir tveir netþjónar hafi misst samband sín á milli. Skýrum þetta með dæmi:

Hugsum okkur lítið IRC net þar sem A, B, C, D og E eru netþjónar og eru þeir tengdir saman eins og myndin sýnir. Hugsum okkur að þú sért á netþjóni D og samband rofni milli A og B. Frá þér séð lítur út fyrir að allir sem tengdir eru þjónum B, C og E hafi hætt á IRC. Á stórum netum og fjölmennum rásum, lítur út fyrir að mikill fjöldi fólks hafa hætt samtímis. Þegar þjónarnir tengjast aftur kemur allt þetta fólk skyndilega til baka á rásina.
Athugaðu að netrof eru afstæð og fólk á þjóni B heldur að þú hafir hætt. Það eina sem þú getur gert á meðan á netrofi stendur er að bíða eftir að netið tengist að nýju. Ekki skipta um netþjón (Server) á meðan á netrofi stendur. Þá eru miklar líkur á að þú lendir í árekstri með gælunafnið þitt. Netrof stafa oftast af yfirálagi á netþjóna, eða af bilun í þjóni eða símalínu. Við þessu er því miður ekkert að gera.

42. Hvað er Nick Collision Kill?
IRC netið tengist sjálfkrafa eftir netrof og á því augnabliki þegar tenging fer fram geta tveir notendur verið með sama gælunafn, en á sitthvorum nethluta. Báðir þessir notendur verða þá aftengdir frá IRC. Þetta gerist oft þegar notuð eru algeng gælunöfn. Þetta fyrirbæri kallast nafnaárekstur. Sumir notendur geta valdið árekstri viljandi og þá oftast til að yfirtaka rásir eða valda öðrum skaða.

43. Hvað er Server-op? ---irc.server.net sets mode: +ooo Nick1 Nick2 Nick3
Þegar IRC net er að tengjast eftir netrof, skiptast þjónarnir sem að tenginunni standa á upplýsingum um nýja notendur, gælunöfn þeirra, á hvaða rásum þeir eru og eiginleika rásana. Þjónarnir munu líka athuga hvort sömu notendur séu rásastjórnendur fyrir rof og eftir tengingu. Þessi aðgerð er kölluð Server-opping og lítur svona út:
--irc.server.net sets mode: +ooo Nick1 Nick2 Nick3

44. Hvað er Ident Server? Hvers vegna er ég óþekkt(ur) og hvaða máli skiptir það?
Ident Server er hluti af Unix tölvu þíns netsala. Hér eru um að ræða skrá sem staðfestir hver þú ert, einskonar nafnskýrteini. Sífelt fleiri IRC þjónar krefjast staðfestingar á því hver þú ert og aftengja þig ef ekki berst fullnægjandi svar.
Þú getur athugað hvort þú hefur þessa staðfestingu með því að nota /whois á gælunafnið þitt. Fyrsta línan í svarinu má EKKI innihalda ~ (bugðu) né - (mínus) á undan netfanginu. Sé svo getur þú prófað að nota nafnþjón (Ident Server) sem er innbyggður í sum IRC forrit, þar á meðal WSIRC og mIRC.

45. Hvað eru rása- og notendaeiginleikar (Channel and User Modes)?
IRC rásir hafa ýmsa eiginleika, sem stilltir eru með MODE skipunum. Sá notandi sem stofnar rás verður stjórnandi hennar, svokallaður Operator, chanop eða bara op. Stofnandinn getur gefið öðrum notendum meðstjórn (op) og breytt eiginleikum rásarinnar. Skipunin sem gerir þetta kleift er:
/MODE { rásarnafn|gælunafn } [ { +|- } { eiginleiki } [ { tilvísun } ] ]
+ eða - merkin ákveða hvort eiginleikinn er virkjaður eða tekinn af.
Helstu eiginleikar rása eru: leynileg, einka-, hámarksfjöldi notenda, nafnlaus, aðeins fyrir boðsgesti, takmörkuð yfirskrift, með bannlista...

/mode { rásarnafn } +b { gælunafn|netfang } bannar notanda með gælunafni eða netfangi (nafn@net).
/mode { rásarnafn } +i rásin er aðeins fyrir boðsgesti.
/mode { rásarnafn } +l { fjöldi } fjöldi á rásinni er takmarkaður við { fjöldi }.
/mode { rásarnafn } +m aðeins stjórnendur og aðrir valdir geta talað.
/mode { rásarnafn } +n utanaðkomandi skilaboð ekki leyfð á rásinni.
/mode { rásarnafn } +p rásin er einkarás.
/mode { rásarnafn } +s rásin er leynileg.
/mode { rásarnafn } +t takmörkun á yfirskrift, aðeins stjórnendur mega breyta henni.
/mode { rásarnafn } +o { gælunafn } gerir { gælunafn } að stjórnanda (op).
/mode { rásarnafn } +v { gælunafn } veitir { gælunafn } tjáningarfrelsi.

Skipunin /MODE gefur líka möguleika á að breyta eiginleikum notanda (User Mode). Þú getur athugað stöðu þína með skipuninni: /MODE {eigiðnafn}. Athugið að sumir netþjónar gefa notanda +i við tengingu til þess að vermda hann. Þetta þarf ekki að vera galli, þar sem notandi getur sjálfur breytt þessu að vild.

/mode { eigiðnafn } +r veitir þér takmarkaðan aðgang, þú getur ekki gefið -r skipun.
/mode { eigiðnafn } +i gerir þig ósýnilega(nn) fyrir þeim sem ekki þekkja gælunafnið þitt.
/mode { eigiðnafn } +o gefur stjórn á rás (op), aðeins framkvæmanlegt af öðrum stjórnendum.
/mode { eigiðnafn } +s leyfir þér að taka á móti athugasemdum frá netþjóni.

Efnisyfirlit

46. Hvað gera þessar rása- og notendaskipanir?
Sjálfgefið er að rásir séu almennar. Þetta merkir að allir geta fundið rásina, séð hverjir eru að nota hana og blandað sér í samræður. Á rásalista sérðu yfirskrift almennra rása. Notendur á almennri rás eru auðfundnir af öðrum notendum, svo lengi sem þeir hafa ekki verið gerðir ósýnilegir með skipuninni /mode +i (sjá neðar).

Þú kemst aðeins inn á rás fyrir boðsgesti, ef þér er boðið af einhverjum stjórnanda.

Einkarásir sjást eðlilega á rásalista. Fólk getur séð að þú ert á einhverri einkarás, en geta ekki séð hvar nema með mikilli fyrirhöfn. Aðeins skipunin /who { rásarnafn } mun afhjúpa þig, nema þú sért varin(n) með eiginleikanum ósýnileg(ur).

Leynilegar rásir sjást ekki á rásalista og þú getur ekki séð yfirskrift þeirra nema tengjast þeim. Ef þú ert á leynilegri rás geta utanaðkomandi ekki séð að þú ert þar, óháð þínum notendaeiginleikum. Ef þú ert aðeins á leynilegri rás birtist nafn þitt ekki á nafnalista IRC.

Sé gælunafn þitt gert ósýnilegt, geta aðrir notendur IRC ekki fundið það nema kunna það nákvæmlega. Engin leit á IRC með /who skipun, með IP addressu né þínu rétta nafni gefa nokkrar upplýsingar um þig.

Hafir þú takmarkaðan aðgang getur þú ekki notað vissar /mode skipanir, ekki sparkað af rásum og ekki breytt gælunafni.

47. Hvaða IRC þjón ætti ég að nota?
Yfirleitt er æskilegast að nota þjón sem er landfræðilega nærri þér. Aðrir þjónar koma þó fyllilega til greina og gott er að spyrja aðra notendur hvaða þjón þeir noti. Sé þjónninn of langt frá, eru líkur til þess að hann neiti þér um aðgang, eða veiti aðeins takmarkaðan aðgang.
Íslenskir þjónar eru: irc.isnet.is
hraustur.isnet.is
Aðrir þjónar sem gott er að hafa í bakhöndinni eru: irc.ludd.luth.se
irc.stealth.net
irc.univ-lyon1.fr
48. Aðrar hjálparskrár og spurningalistar innihalda oft meira og jafnvel annað efni. Hvers vegna?
Þessi spurningalisti er fyrst og fremst ætlaður þeim sem nota IRC forrit fyrir Windows og þar af leiðandi er sleppt öllu því sem sérstaklega snýr að öðrum kerfum, svo sem UNIX. Margar skipanir sem notaðar eru í UNIX eru óþarfar og ónothæfar í Windows umhverfi og eiga því ekki heima hér.

49. Hvar get ég leitað meiri upplýsinga?
Til eru nokkrar bækur á íslensku um Internetið og IRC og bendi ég á bókabúðir í því máli. Á Internetinu má finna allt sem vert er að vita um IRC og er mest af því á ensku. Fyrir þá sem sjálfir vilja leita sér upplýsinga, læt ég hér fljóta með lista yfir vefföng og hirði ekki um að þýða hann. Efni þetta er hvort eð er allt á enskri tungu.

IRC RFC
The Internet Relay Chat (IRC) Protocol is explained and defined in the Request for Comments (RFC) number 1459 written by the founder of IRC J. Oikarinen and D. Reed. This RFC is available by FTP from
ftp://cs-ftp.bu.edu/irc/support/rfc1459.txt
ftp://ftp.tohoku.ac.jp/pub/doc/RFC/rfc1459.txt


IRC Primer
A good, simple and basic introduction to IRC is found in the IRC Primer by Nicolas Pioch. Get it by FTP from
ftp://cs-ftp.bu.edu/irc/support/IRCprimer1.1.txt
http://mistral.enst.fr/~pioch/IRC/hints.html


IRC FAQ
The IRC Frequently Asked Questions (FAQ) by Helen Trillian Rose provides excellent information on a lot of IRC issues. The IRC FAQ is available by FTP at
cs-ftp.bu.edu:/irc/support/alt-irc-faq
ftp.kei.com:/pub/irc/alt-irc-faq
http://www.kei.com/irc.html


Undernet FAQ
The Undernet IRC FAQ consists of 2 parts. The initial version was written by Paul Grant and later versions by Mandar M. Mirashi. The latest version can always be found at:
ftp://ftp.undernet.org/undernet/docs/
URL's to the World Wide Web version of this FAQ are:
http://www2.undernet.org:8080/~cs93jtl/underfaq/
http://www.cis.ohio-state.edu/hypertext/faq/usenet/irc/undernet-faq/part1/faq.html
http://www.cis.ohio-state.edu/hypertext/faq/usenet/irc/undernet-faq/part2/faq.html


WWW
On the world wide web a lot of additional info can be easily found. Do some simple searches on Yahoo or Webcrawler to find tons of info !!
http://www2.undernet.org:8080/~cs93jtl/IRC.html
http://www.yahoo.com/Computers_and_Internet/Internet/Chatting/IRC/
http://uptown.turnpike.net/L/Larry14/irc.html

You can also visit some Windows IRC clients World Wide Web pages to get more info :
WSIRC http://ftp.clark.net/pub/csamsi/home.html
mIRC http://www.mirc.co.uk/index.html
mIRC http://www-2.nijenrode.nl/software/mirc/index.html
mIRC http://www.geocities.com/SiliconValley/Park/6000/index.html
InteRfaCe http://www.hijinx.com.au/interfac/interfac.htm
Chatman http://www.uai.cl/~burton/chatman/
Virc http://www.megalith.co.uk/virc/


Usenet
The Usenet alt.irc.- newsgroups provide a lot of information to both newbies and experienced people on IRC. I can highly recommend 'lurking' there for a while!

Books about IRC and mIRC.
Learn Internet Relay Chat - Kathryn Toyer
© 1997 Wordware Publishing, Inc.
ISBN 1-55622-519-9

Using Internet Relay Chat - Marianne Pyra
© 1995 Que Corporation
ISBN 0-7897-0020-4


IRC
On IRC you will find several channels intended to help you with simple as well as more difficult problems. You could give #irchelp, #ircnewbies, #new2irc, #newbies and #wasteland a try. Also most of the popular Windows based IRC clients have their own IRC channel. Check out #mirc, #virc, #interface and #wsirc. Please don't demand help though; we are all volunteers there.

50. Lokaorð.
Ef þú ert enn að lesa þessa langloku, þá vil ég þakka þér þolinmæðina og vona að þú hafir haft eitthvert gagn af. Aðalheimild að þessari síðu er "IRC Intro File for IRC Newbies using Windows" sem fylgir með mIRC og er eftir Tjerk Vonck. Auk þess hef ég bætt inn eigin hugleiðingum og staðfært ýmsar upplýsingar fyrir íslendinga. Öllum er frjálst að nota þennan texta að eigin vild, í heild sinni eða hlutum.

Ég hef reynt að þýða textann eftir bestu vitund, en vitaskuld er hann ekki villulaus. Ég get því enga ábyrgð tekið á hugsanlegum mál og ritvillum, né tjóni af þeirra völdum. Ef þú rekst á villur í riti þessu, eða hafir einhverju við að bæta, þætti mér vænt um að þú sendir mér línu um það. Eins vil ég gjarnan fá umsögn um síðu þessa, hvort sem um er að ræða jákvæða eða neikvæða skoðun.

Björgvin Árnason