![]() |
Íslenska
mIRC hjálpin. Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri. Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda. |
Að
sækja og setja upp mIRC Aðrir vefir um IRC
|
Hvernig
á að verjast veirum og öðrum ófögnuði
á IRC?
Nokkuð er um Vírusa og Trójuhesta
á IRC og því hef ég leitað upplýsinga
um slíkt. Dæmi um slíkt er skrá sem heitir: LIFE_STAGES.TXT.SHS. Um er að ræða Trójuhest eða Orm sem fer eins og eldur í sinu um IRCið þessa dagana og margir íslendingar hafa krækt sér í ófögnuðin. Þessi Ormur er sérlega slæmur þar sem hann dreyfir sér sjálfkrafa með Microsoft Outlook og gegnum mIRC. Fyrsta ráð er að vera á varðbergi og taka ekki við neinum óumbeðnum skrám á IRC og hafa sérstaklega gætur á fyrrnefndu skrárnafni. LIFE_STAGES.TXT.SHS upplýsingar. Hér getur þú lesið nánar um Life_Stages. Hvernig þekkjum við góðar skrár frá slæmum? Það er ekki einfalt að þekkja munin á góðum og slæmum skrám hér frekar en í pósti. Sama einfalda regla gildir þó, að taka aldrei við neinu frá fólki sem við ekki þekkjum vel og treystum rúmlega 100%. Þegar einhver reynir að senda okkur skrá, fáum við viðvörun frá mIRC og þar kemur fram nick sendanda og nafn á skránni (file) sem hann/hún vill senda. Málið er að ormar og vírusar dreifa sér sjálfkrafa án þess að sendandinn viti af því. Því gæti tölva okkar besta vinar verið smituð og sent okkur skrá án þess að hann fái nokkuð að gert. Oft veit fólk ekki að tölvan er smituð, fyrr en einhver kvartar og því ættum við að segja fólki frá því ef okkur berast grunsamlegar sendingar. Nafnið á skránni endar venjulega á punkti og 3 bókstöfum og segir það til um gerð skrárinnar. Ef nafnið endar á .jpg eða .gif er um mynd að ræða, .waw er hljóð og svo framvegis. Mjög algengt er að fólk sendi okkur skár sem geta heitið t.d. myphoto.jpg.exe og lítur það þá út fyrir að vera ljósmynd ekki satt? Svo er þó ekki, því að það er búið að rugla okkur með tveimur punktum í nafninu. Seinni punkturinn og exe heitið segja okkur að þetta sé forrit og mjög sennilega stórhættulegur vírus. Endingar eins og .bat .txt .dll og .com ættum við að varast sérstaklega líka. Hvað er hægt að gera? Við getum stillt mIRC þannig að það taki aðeins við ákveðnum gerðum af skrám, eða taki alls ekki við neinu yfir höfuð. Einfaldast er að taka ekki við neinu og það er líka einfalt að stilla þetta. Farðu efst til vinstri á skjáinn og veldu File - Options - DCC og þá færðu upp þetta spjald:
Fylltu spjaldið út eins og myndin sýnir og veldu svo Folders úr glugganum til vinstri.
Á miðju spjaldinu þar sem stendur DCC
Ignore þurfum við að velja eins og myndin sýnir.
Við veljum Ignore all exept:, höfum miðreitinn auðan og
neðsti skiptir ekki höfuðmáli, (2-10 min).
Þessi síða er gerð af Björgvin Árnasyni með samþykki höfunda mIRC. Öllum er frjálst að vísa í hana og nota efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið. mIRC® er skrásett vörumerki. Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC® is a registered trademark of mIRC Co. Ltd. |