![]() |
Íslenska
mIRC hjálpin. Þessar síður eru gerðar með samþykki mIRC CO. Ltd. höfundarrétthafa mIRC og eigenda mIRC táknsins hér til vinstri. Smellið á táknið til að komast á heimasíðu framleiðanda. |
|
|
Síðast
uppfært 10. sept 2004
|
|
|
Hér verður gerð
grein fyrir stillingum DCC í mIRC Options valmyndinni. DCC On Send Request Hér ákveður þú hvernig mIRC bregst við þegar einhver reynir að senda þér skrá. Sjálfgefið er að upp komi gluggi sem spyr hvort þú viljir taka við skránni, ef þú hinsvegar velur Auto-get file mun mIRC taka við skránni sjálfkrafa. Ef þú velur Ignore All mun mIRC loka á allar sendingar til þín. Reyni einhver að senda þér skrá sem þegar er til í viðtökumöppu hjá þér, mun birtast viðvörun þess efnis. Þú getur þá valið um að skrifa yfir gömlu skrána, hætta við eða velja nýtt nafn. Hafið í huga að vírusar eru sendir á IRC með DCC. Takið því ekki á móti skrám frá fólki sem þið ekki þekkið. Lesið um vírusa hér. If Auto-get and file exists Hér ákveður þú hvað gerist ef valið hefur verðið Auto-get hér að ofan og skráin sem þér er send er þegar til á þínum diski. Eðlilegast er að láta mIRC spyrja (Ask) þig hvað gera skuli. On Chat Request Hér ákveður þú hvernig mIRC bregst við ef einhver vill spjalla við þig á DCC. Sjálfgefið er að mIRC spyrji þig hvort þú viljir spjalla, en þú getur líka valið að taka sjálfkrafa við spjalli eða loka á alla. DCC Options On DCC Completion... Hér er ákveðið hvað gerast skuli að aflokinni DCC törn. Velja má hér hvort mIRC flautar, lokar viðkomandi glugga eða gerir ekkert. mIRC birtir í Status glugganum boð um hvort sending tókst eða ekki. Time-out in Seconds Þegar notandi óskar eftir samtali eða að senda skrá, birtist þar til gerður gluggi með beiðni um að samþykkja eða hafna. Þessi gluggi verður opinn þann fjölda sekúndna sem þú ákveður hér og hverfur síðan. DCC Ports Hér geturðu valið númer fyrir port sem mIRC getur notað til að opna DCC tengingu. Venjulega má hér nota 1024 - 5000, en sum kerfi leyfa hæsta númer 64000. Max. DCC Sends Fjöldi DCC sendinga sem geta verið í gangi samtímis. DCC Folders DCC Get Folders Hér geturðu skilgreint mismunandi möppur fyrir mismunandi gerðir af skrám. Skrár sem ekki eru sérstaklega skilgreindar fara í sjálfgefna möppu, vanalega download. Ignore all files except... Hér geturðu ákveðið hvaða tegundir skráa mIRC samþykkir eða hafnar þegar einhver vill senda þér skrár. Turn ignore back on Ef þú hefur gert Ignore óvirkt tímabundið til að taka á móti skrá, þá mun það koma á aftur eftir innstilltan tíma. DCC Fileserver Hægt er að setja upp eigin skráaþjón (fileserver) heima og leyfa öðrum notendum aðgang að honum til að hlaða niður skrám. Athugið að aðeins örfáir notendur IRC nota skráaþjóna og að það krefst allmikillar kunnátu. Max. Fileservers Hér er takmarkaður sá fjöldi sendinga sem geta verið samtímis í gangi frá skráaþjóni (Fileserver). Max. DCC Gets Hér er takmarkaður sá fjöldi skráa sem einn notandi getur krafist samtímis. Root Directory Þetta er það skráasafn sem annar notandi sér þegar hann tengist skráaþjóni með aðstoð DCC þjóns. Notandinn mun hafa aðgang að öllum skrám og skráasöfnum innan þessa rótarsafns. Welcome text file Þetta er textaskrá sem venjulega bíður notandann velkominn og kynnir fyrir honum efnisyfirlit þíns skráasafns. Þetta er fyrsta skráin sem hann fær þegar hann tengist skráþjóni. Display fileserver warning Birtir viðvörun í hvert sinn sem einhver óskar eftir skrá frá skráþjóni. DCC Server mIRC hefur innbyggðan DCC þjón sem hlustar eftir ákveðnum gerðum tenginga frá öðrum mIRC notendum. Enable DCC Server Hér er kveikt og slökkt á DCC þjóninum. Listen on Port Þjónninn hlustar eftir boðum á inngangi númer 59. Nota má önnur númer. Listen for... Þú getur ákveðið hverskonar boðum DCC þjónninn hlustar eftir. Um er að ræða sendingar, spjall og skráaþjón. Ef ekki er merkt við t.d. DCC Chat, þá mun þjónninn hunsa allar spjall beiðnir. Perform DNS lookup Þegar einhver tengist DCC þjóninum þínum er aðeins hægt að bera kensl á hann af IP vistfangi hans. Ef þú merkir við DNS mun mIRC reyna að birta nafn í staðinn. Þessi síða er gerð af Björgvin Árnasyni með samþykki höfunda mIRC. Öllum er frjálst að vísa í hana og nota efni hennar ef höfunda og staðsetningar er getið. mIRC® er skrásett vörumerki. Copyright © 1995-2000 Tjerk Vonck & mIRC Co. Ltd. mIRC® is a registered trademark of mIRC Co. Ltd. |
||