|
föstudagur, 10 október 2008 |
|
Samkvæmt fréttum í dag virðist sem ríkissjóður hafi ábyrgst full laun og uppsagnarfrest samkvæmt ráðningarsamningum til handa bankastarfsmönnum er misst hafa atvinnu sína síðustu daga. Það er ástæða til að gleðjast yfir bættri réttarstöðu launafólks. Félagar AFLs sem lent hafa í því að launagreiðendur þeirra hafi farið í þrot hafa ekki notið þessara kjara en væntanlega mun ríkisstjórnin sjá til þess að þessi kjör gildi um alla launþega.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Séreignasparnađur: Engin ástćđa til ađ hćtta |
|
föstudagur, 10 október 2008 |
|
AFL Starfsgreinafélag hefur verið í sambandi við sérfræðing Nýja Landsbankans í kjölfar fyrirspurna félagsmanna um áframhald séreignasparnaðar til banka. Samkvæmt upplýsingum sem félagið fékk er ekki ástæða til að hætta þátttöku í séreignasparnaði þó svo að ekki sé alveg ljóst á þessari stundu hvernig fer með þá reikninga sem fólk hefur haft í aðildarsjóðum séreignarsparnaðar. Félagið mun afla frekari upplýsinga í næstu viku.
|
|
|
Upplýsingar frá Alţýđusambandi Íslands |
|
föstudagur, 10 október 2008 |
|
Hér til hægri á heimasíðu okkar eru tenglar inn á upplýsingapésa er lögfræðisvið Alþýðusambands Íslands hefur unnið síðustu daga. Þar er m.a. fjallað um uppsagnir, ákvæði laga og kjarasamninga við uppsagnarferil, hópuppsagnir og fleira. Þá er fjallað um ábyrgð á innistæðum og útskýrður munur á mismunandi tegundum innlánsreikninga.
|
|
Lesa meira...
|
|
|